„Breiddin er mikil í liðinu“

Ómar Ingi Magnússon rauf 400 marka múrinn í markaskorun sinni fyrir íslenska landsliðið í kvöld. mbl.is/Eyþór Arnason

„Að vinna leikinn og spila almennilega var aðalatriðið í dag og okkur tókst það,“ sagði Ómar Ingi Magnússon leikmaður Íslands eftir 22 marka sigur á Úkraínu í fyrstu umferð undankeppni EM 2028 í Laugardalshöll í kvöld. Ómar Ingi skoraði sitt 400. mark í kvöld fyrir íslenska landsliðið og í heildina 6 mörk í öllum leiknum. Hann hafði þetta að segja um auðveldan sigur Íslands.

„Vissum að við þyrftum að gera okkar“

„Við vissum ekki alveg hversu góðir þeir væru en við vissum að við þyrftum að gera okkar og við kláruðum þennan leik með góðri frammistöðu í fyrri hálfleik sem við fylgdum síðan eftir með góðum seinni hálfleik,“ sagði Ómar Ingi spurður út í leikinn í kvöld.

Ómar Ingi sagði að þrátt fyrir að leikurinn hefði ekki verið mikil áskorun fyrir liðið þá hefði hann verið góður undirbúningur fyrir komandi átök landsliðsins í janúar á HM í Þýskalandi.

„Við spiluðum heilt yfir stöðugan leik í kvöld og við gerðum einföldu hlutina mjög vel bæði í vörn og sókn.“

Ómar Ingi Magnússon í leiknum í kvöld.

Ómar Ingi Magnússon í leiknum í kvöld. mbl.is/Eyþór Arnason

„Tíminn líður augljóslega hratt“

Þú rýfur 400 marka múrinn í markaskorun þinni fyrir íslenska landsliðið. Hvernig er sú tilfinning?

„Hún er bara fín. Tíminn líður augljóslega hratt. Þetta er mjög gaman og það gengur vel og ég á nóg eftir.“

Ertu ánægður með þá staðreynd að þrátt fyrir að Snorri hafi róterað mikið í seinni hálfleik og leyft minna reyndum leikmönnum að spila þá hafði það engin áhrif á ykkar frammistöðu?

„Já, við erum með klassa leikmenn sem komu inn af bekknum og breiddin er mikil í liðinu. VIð megum við því að skipta inn á og það er bara styrkleikamerki.“

Ómar Ingi Magnússon á vítalínunni í kvöld.

Ómar Ingi Magnússon á vítalínunni í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

Næsta verkefni er að fljúga til Eistlands og mæta þeim í Tallin á sunnudag. Er ekki algjör skylda fyrir íslenska liðið að vinna Eistlendinga?

„Ég held það. Án þess að hafa séð þá spila þá held ég að það sé lið sem við eigum að vinna og það er auðvitað alltaf okkar markmið og krafa á okkur sjálfa,“ sagði Ómar Ingi í samtali við mbl.is.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅