Ofbeldismálið sem vakti heimsathygli: „ Mér var óskiljanlegt hvað þeir voru ungir, þótti það enn sárara. … Þessi kona sem lá þarna hreyfingarlaus og þeir níddust á“

Í tíu ár hafði eiginmaður Gisèle Pelicot byrlað henni lyf, nauðgað henni og boðið fjölda ókunnugra manna inn á heimili þeirra til að misnota hana á meðan hann tók árásirnar upp á myndband. Þegar lögreglan komst á snoðir um málið fyrir tilviljun rataði það í fréttir um allan heim. Í réttarhöldunum sem fylgdu í kjölfarið krafðist Pelicot þess að þau yrðu opin öllum. Allir áttu að sjá hverjir glæpamennirnir voru, hvað þeir höfðu gert henni og að hún neitaði að bera skömmina.

Í bók sinni, Óði til lífsins, segir Gisèle Pelicot frá ævi sinni og óbilandi leit að hamingju, bæði fyrir og eftir að upp komst um glæpi eiginmannsins. Saga hennar er sögð til að veita von, kalla eftir breytingum og sýna fórnarlömbum kynferðisofbeldis hvernig finna megi frið og njóta lífsins á ný.

Ólöf Pétursdóttir þýddi bókina sem komin er út hjá Forlaginu. 

Með leyfi birtum við hér brot úr kafla 15:

Svo gerðist það einn fagran dag í maí 2024 að ég skipti um skoðun. Það gerðist þegar ég var í gönguferð. Ég var ein þann dag, ég gekk í átt til skógar og hugðist fara með strönd inni heim. Ég hugsaði til þess að nú styttist í réttarhöldin. Reyndar hugsaði ég um fátt annað þessa dagana. Við vorum á kafi í undirbúningi, lögfræðingarnir mínir tveir og ég. Nú talaði ég yfirleitt um þá sem „strákana“, það var hálfgert gælunafn og endurspeglaði mikilvægi þeirra fyrir mér. Eigi að síður héldu þeir af hógværð sinni hæfilegri fjarlægð við mig. Við vorum ekki ósvipuð að þessu leyti. 

Stéphane og Antoine höfðu beðið mig um að lesa ákæru skjalið í heild sinni, fjögur hundruð síður. Yfirlit yfir allt það sem ég hafði heyrt, skilið og lært á undanförnum árum. Nú var ekki lengur hægt að takast á við veruleikann í skrefum eins og ég hafði alltaf gert. Nú þurfti ég að lesa þetta allt í einni lotu, allar nauðganirnar sem ég hafði orðið fyrir yfir tíu ára skeið og í öllum smáatriðum. Jean-Loup prentaði það allt út fyrir mig. Ég skyldi ekki lesa þetta af tölvuskjá. Ég vildi eiga þess kost að draga mig í hlé, hjúfra mig ofan í hæg indastól, inni eða úti, með lausu blöðin mín. Þetta byrjaði á löngum lista yfir ákærðu. Nafn, starfsheiti, heimilisfang. Ég undirstrikaði fæðingarárið. 1997 … 1998 … Ég er fædd 1952. Mér var óskiljanlegt hvað þeir voru ungir, þótti það enn sárara. Svo voru taldir upp málavextir í hverju tilviki. Hrollvekjandi og grimmilegir. Og ekkert af þessu sat eftir í minninu, þrátt fyrir að þetta væri skráð þarna svart á hvítu var það svo fjarri því sem ég gat ímyndað mér, eiginlega óraunverulegt. Þessi kona sem lá þarna hreyfingarlaus og þeir níddust á. Svo voga þeir sér að segja að hún hafi verið þessu samþykk. 

Maginn á mér herptist saman. Með reglulegu millibili lagði ég frá mér blöðin til að ná andanum. Dagsetningarnar voru svo særandi. Ég sá fyrir mér stund rétt áður og svo rétt á eftir, hvar við vorum og hvað við upplifðum, það sem ég taldi hamingju. Þetta var á afmælisdeginum mínum, þetta var á gamlárskvöld þegar við vorum bara tvö ein, aldrei þessu vant, stuttu eftir að börnin fóru. Jean-Loup las líka. Það truflaði mig ekki. „Hvernig gat líkami þinn þolað þetta allt?“ spurði hann stundum. Þegar ég heyrði hann bera fram þessa spurningu sem ég átti ekki svar við, kollsteyptist ég aftur ofan í hryllinginn en um leið sá ég hryllinginn færast aðeins fjær, ég heyrði mig segja að ég hefði komist lífs af. Nú var ég til í að takast á við þennan hrylling. Antoine og Stéph ane leyndu því ekki að þetta fyrirkomulag réttarhaldanna væri þeim harla framandlegt: 51 ákærður. Fimmtíu manns og sá sem var eiginmaðurinn minn. Úlfastóð og Dominique. 

Ég gat varla beðið eftir því að hitta hann augliti til auglitis. Ég óttaðist hina vegna þess hversu margir þeir voru. Fyrir bragðið varð ég æ kvíðnari fyrir þessum luktu dyrum réttarins sem áttu að vernda mig fyrir ágangi fjölmiðla og ummælum þeirra. Ég yrði ein andspænis þeim. Lokuð inni með þeim. Þetta var óljós tilfinning sem ég átti erfitt með að koma orðum að. Ég hafði ekki nefnt þetta við neinn, en eftir því sem nær dró fannst mér ég verða meir eins og gísl augnaráðs þeirra og orða, hugleysis þeirra, lyganna og fyrir litningarinnar. Þeir voru bornir þungum sökum og sönn unargögnin voru einstaklega traust. Eftir sem áður urðu fimmtíu manns að þéttum hópi í luktu rýminu. Raddir þeirra myndu kæfa mína. Augu þeirra allra myndu beinast að mér. Þeir stæðu saman öxl við öxl og mynduðu múrvegg fyrir framan mig. Var ég ekki að gera þeim stórgreiða? Var ég ekki að verja þá með því að loka dyrunum? 

Enginn utan þeirra sem yrðu viðstaddir réttarhöldin myndi vita hvað þeir höfðu gert mér. Þarna yrði enginn blaðamaður sem tæki niður nöfnin og glæpi hvers og eins. Enginn utanaðkomandi kæmi til að virða þá fyrir sér og reyna að átta sig á því sem greinir nauðgara frá öðrum nágrönnum og samstarfsmönnum, þó það sé greinilega lítill vandi að kalla þá til leiks. Þess utan myndi engin kona mega koma og fá sér sæti í salnum til að rjúfa einsemdina. Þetta hlaut að hafa hent aðra þó að ég vissi ekki af því. Frammi fyrir dómurunum yrðu engir nema ég, börnin mín, Antoine og Stéphane, frammi fyrir stóðinu og fjörutíu og fimm lög mönnum þeirra. 

Þó hafði ég átt mér þá ósk heitasta að réttarhöldin færu fram fyrir luktum dyrum. Ég hafði ítrekað það við dómar ann nokkrum mánuðum áður. Ég ræddi þetta ekki einu sinni við lögfræðingana, þetta var svo sjálfsagt að mér fannst. Fyrri lögfræðingur minn hafði reyndar mælt með opnum réttarhöldum í þágu almennrar opinberrar fordæmingar á ofbeldi gegn konum. Ég hafnaði því, ég vildi ekki að sambúð okkar Dominiques yrði brotin til mergjar á opinberum vett vangi. Réttvísin varð að hafa sinn gang án þess að kastljósið beindist að mér, ég vildi ekki vera í hlutverki fórnarlambs, þessi vesalings kona var ekki ég, ekki sú sem ég vildi vera. 

Þennan maídag jukust efasemdir mínar við hvert spor. Hefði Dominique setið einn á sakamannabekk hefði verið sjálfsagt að rétta fyrir luktum dyrum en nú yrði sakamanna bekkurinn þéttsetinn. Spurningarnar sóttu fast að mér og vöktu angist, reiði og sjálfsöryggi í senn. Nú var ég orðin sterkari en áður, ég var ekki lengur sú sem öllu hafði glatað. Nú bjó ég með Jean-Loup og hringurinn sem ég gekk myndi bráðum færa mig heim til hans, til okkar. Nokkrum mán uðum áður hafði ég verið vön að láta mig hverfa. Ég þekkti börnin hans en ég staldraði ekki lengi við þegar þau komu. Ég hafði hugsað mér að dvelja í litla húsinu mínu á meðan Victor héldi upp á þrítugsafmælið sitt en þegar hann hringdi og bauð mér ákvað ég að koma. Svo voru það börnin mín. Við vorum saman um sumarið og yfir jól og áramót og öldurnar virtist hafa lægt í samskiptum okkar. Fjölskyldan mín var að gróa sára sinna. Ég var ánægð að við skyldum tala saman oftar, ég spurði frétta af þeim, ég heyrði aftur í barnabörnunum sem ég hafði saknað svo sárt. Við tókumst hvert með sínum hætti á við réttarhöldin yfir föður og eiginmanni en við yrðum saman í réttarsalnum til að fá botn í það sem við höfðum upplifað eða að minnsta kosti einhvers konar málalok. 

Nú var ég komin á ströndina. Sjávarloftið var ferskt þegar ég andaði því inn. Ég fann glöggt hvað ég var útsett fyrir náttúruöflunum og agnarsmá en alveg sprelllifandi. Ég fann það í öllum líkama mínum að ég vildi ekki vera ein lengur. Það voru svo margir vandalausir sem höfðu reynst mér svo vel, tekið á móti mér þegar ég var orðin allslaus. Ég óttaðist ekki lengur augnaráð annarra, vitneskju annarra um fortíð mína. Skömminni verður að skila. Það hafði verið tönnlast á þessu í liðlega áratug til að styðja konur sem voru fórnar lömb nauðgana. Ég hafði heyrt þessi orð og nú hreiðruðu þau um sig í huga mér líkt og stef, eins og lítil bitjárn sem brýndu hugsun mína. Nú skyldu allir fá að sjá fimmtíu og einn nauðgara. Það var þeirra að verða niðurlútir af skömm. Ekki mitt. Ég fór upp sandhólinn þar sem ströndin varð tor færari. Þar lauk gönguferð minni, nú þurfti ég að snúa við til að komast á stíginn heim til Jean-Loup. Ég stóð kyrr drjúga stund uppi á sandhólnum og horfði þangað sem himinn og haf renna saman. Nú vissi ég að það yrði réttað fyrir opnum tjöldum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅