Segir Daða gera lítið úr athugasemdum Harðar

Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Anton Brink

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra harðlega á Alþingi í dag fyrir að gera lítið úr athugasemdum Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra Landsvirkjunar, við samskipti ráðherrans og stjórnar fyrirtækisins.

Daði hafði fyrr í umræðunni hafnað því að pólitísk afskipti hefðu átt sér stað og sagt þingmenn hugsanlega hafa mislesið athugasemdir Harðar. Hann sagði Hörð hafa lýst áhyggjum af því að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) kynni að gera athugasemdir við stjórnarhætti Landsvirkjunar, en ekki fullyrt að pólitískum afskiptum hefði verið beitt.

Hildur lýsti furðu sinni á þessari túlkun ráðherrans og sagði skýrt koma fram í minnisblaði Harðar að hann hefði haft áhyggjur af óeðlilegum samskiptum ráðherrans sjálfs og stjórnar Landsvirkjunar, sem hann hefði talið ekki aðeins óheppileg heldur mögulega ólögmæt.

Hún sagði ráðherrann skauta glannalega fram hjá þessum athugasemdum í svörum sínum til Alþingis.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Hugsanlega ekki farið að lögum

Í minnisblaði Harðar segir meðal annars:

„Á síðustu misserum hafa komið upp atvik þar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið og stjórn Landsvirkjunar hafa að mínu mati vikið frá þessum mótaða ramma sem er bundinn í lög um Landsvirkjun, lög um opinber fjármál, ríkisstyrkjareglur o.fl.“

Hann nefnir einnig sérstaklega að ráðuneytið hafi haft frumkvæði að fundum með stjórn án þess að forstjóri fengi fundarboð, að þar hafi verið fjallað um málefni sem ekki ætti að ræða við ráðuneytið og óskað eftir upplýsingum sem ekki væri heimilt að veita.

Þá segir:

„Ástæða þess að þetta minnisblað er ritað er sú að ég tel það lögbundna skyldu mína sem forstjóra að benda á þá staðreynd að hugsanlega sé ekki farið að lögum og þá alvarlegu hættu sem það getur skapað.“

Skoraði á ráðherra

Hildur gerði jafnframt athugasemdir við fullyrðingar ráðherrans um að fundir hans með stjórn Landsvirkjunar hefðu eingöngu snúist um almenna stjórnarhætti.

Hún vísaði til fundargerðar frá 6. janúar þar sem fram kæmi að rætt hefði verið um ágreining Landsvirkjunar og Landsnets, lög um Landsvirkjun og skuldabréf vegna sölu Landsnets, meðal annars í samhengi við arðgreiðslur.

Hildur skoraði á ráðherrann að draga til baka þá fullyrðingu að fundurinn hefði aðeins snúist um almenna stjórnarhætti.

Daði svaraði því til að hann hefði sjálfur aðeins fundað tvisvar með stjórn Landsvirkjunar, einu sinni á síðasta ári og einu sinni á þessu ári. Aðrir fundir sem Hildur vísaði til hefðu verið fundir sérfræðinga fjármálaráðuneytisins með fulltrúum Landsvirkjunar.

Hann sagði sambærilega fundi haldna með öðrum ríkisfyrirtækjum, meðal annars um sjálfsmat stjórna, eigendastefnu og arðsemiskröfur.

Hörður Arnarson fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar.

Hörður Arnarson fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar. mbl.is/Hallur Már

Daglegur rekstur ekki ræddur

Í síðara svari sínu áréttaði Daði að fundir sérfræðinga ráðuneytisins hefðu ekki verið haldnir með stjórn Landsvirkjunar einni saman, heldur hefðu starfsmenn fyrirtækisins einnig tekið þátt.

Hann sagði umræður um samskipti ríkisaðila falla undir almennar áherslur ríkisins sem eiganda.

„Engar umræður áttu sér stað á þessum fundum um daglegan rekstur eða daglegar ákvarðanir Landsvirkjunar,“ sagði Daði.

Ráðherrann svaraði hins vegar ekki sérstaklega þeirri gagnrýni Hildar að hann hefði gert lítið úr athugasemdum Harðar um samskipti sín við stjórnina.

Hann dró heldur ekki til baka fyrri lýsingu sína á fundinum 6. janúar, heldur lagði áherslu á að einstök málefni sem rædd væru í tengslum við eigendastefnu jafngiltu ekki umræðu um daglegan rekstur fyrirtækisins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅