Nálgast Real Madrid eftir að hafa fengið nýtt vegabréf á Kýpur
Real Madrid er sagt nálgast kaup á JJ Gabriel, 16 ára gömlu undrabarni Manchester United, sem hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í unglingafótboltanum.
Samkvæmt The Sun hefur Gabriel fengið kýpverskt vegabréf sem gæti gert honum kleift að ganga til liðs við spænska stórliðið þrátt fyrir reglur sem tóku gildi eftir Brexit.
Gabriel hefur ekki mætt aftur til æfinga hjá United síðan í september og æfir nú á Spáni.
Fjölskylda hans er ósátt við hvernig United hefur staðið að uppbyggingu leikmannsins og telur hann ekki fá næg tækifæri með aðalliðinu.
Gabriel skoraði 23 mörk í ensku U18-deildinni á síðasta tímabili og var valinn besti leikmaður deildarinnar.
Barcelona og Paris Saint-Germain hafa einnig sýnt honum áhuga en Real Madrid er talið standa best að vígi.
Forráðamenn United hafa reynt að sannfæra Gabriel um að vera áfram en samkvæmt fréttinni virðist félagið nú undir það búið að missa hann.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗