Jósep kom til að fá bækur að láni - Þurftu að fela rakspírann þegar hann brá sér á salernið

Í bókinni Endurminningar frá Eskifirði, sem Bókaútgáfan Hólar gefur út, rifjar Þorsteinn Skúlason lögfræðingur upp æskuár sín, en þar fæddist hann árið 1940 og bjó til ársins 1957. Einn af vinum fjölskyldu hans var Jósep Gestsson, faðir Lúðvíks Jósepssonar ráðherra.

Í eftirfarandi kafla segir af samskiptunum við Jósep: 

Jósep Benedikt Gestsson var fæddur 13. október 1894 á Vattarnesi við Reyðarfjörð og kom til Eskifjarðar 1896 frá Eyri í Fáskrúðsfirði.  Ég kynntist Jósep fyrst þegar hann klippti mig mjög ungan en hann gerði sér atvinnu af klippingum og viðgerðum á gúmmískótaui og annarri gúmmívöru.  Hann var sjómaður á yngri árum eða vann í landi við útgerð og var þá gjarnan landformaður.

                Hann var einsetumaður og bjó í litlu rauðu húsi við kirkjubrekkuna, sem kallað er Einarshús í manntölum 1940 og 1950, þar til um miðja öldina að hann flutti í annað lítið hús skammt ofan við kirkjuna og var það svart að lit.  Þessi hús voru nánast eins að byggingarlagi og innréttingu, þau voru með risi og viðbyggðum skúr við innendann og var inngangurinn í skúrinn að ofanverðu en hann var að öðru leyti geymsla fyrir kol og fleira.  Risið var lítið og aðeins nothæft sem geymsla.  Úr skúrnum var gengið inn í eldhúsið, sem einnig var gúmmívinnustofa Jóseps, og þaðan í íveruherbergi hans.  Þar klippti hann menn en hann hætti því minnir mig eftir að hann flutti enda voru þá aðrir farnir að stunda klippingar í plássinu.  Jósep gekk einstaklega vel um híbýli sín, þar var alltaf hreint og þrifið og hver hlutur nákvæmlega á sínum stað.  Mér er minnisstætt hve vel og vandlega hann raðaði verkfærum sínum. 

                Jósep var ágætis vinur minn og heimsótti ég hann reglulega eftir að ég var farinn að stálpast, við höfðum um margt að spjalla og talaði hann ávallt við mig sem fullorðinn mann og kunni ég því  vel.

                Hann hafði ekki úr miklu að spila og Jón Sveinsson kaupfélagsstjóri stakk stundum að honum pening og haft var eftir honum að það ætti að gera vel við þennan eina róna sem við ættum.  Jósep var orðaður við brennivín og drykkjuskap alla sína tíð.  Eitt er víst að þegar hann kom á heimili foreldra minna til þess að fá bækur að láni þá átti hann það til að biðja um að fá að fara á salernið og þar fékk hann sér vænan slurk af rakspíra föður míns.  Fljótlega lærðist þó að fjarlægja spírann þegar von var á Jósep og hætti hann þá að þurfa að fara á salernið.  En ég varð lítið var við þennan drykkjuskap hans, get varla sagt að ég hafi séð hann fullan og tel að meira hafi verið gert úr drykkjunni en tilefni var til eins og oft vill verða.

                Jósep var vel gefinn maður og hafði nokkra menntun, allavega fékk hann lánað hjá föður mínum norskt ritsafn, Bjørnstjerne Bjørnson Samlede værker, og reyndar fleiri bækur eins og til dæmis Mannamun eftir Jón Mýrdal sem hann fékk stundum lánaða til að rifja hana upp en hann fór stundum yfir söguna með sjálfum sér á kvöldin þegar hann var lagstur til svefns.  Eitthvað átti hann af bókum, þar á meðal tvær frægar bandarískar nítjándu aldar skáldsögur sem voru Kapitóla eftir Emmu Dorothy Elizu Nevitte Southworth og Valdimar munkur eftir Silvanus Cobb, sem hann lánaði mér báðar og fundust mér þessar bókmenntir mjög spennandi.

                 Einhvern tíma keypti ég í fornbókabúð bókina Vesturfara-túlkur. Enskunámsbók fyrir almenning til þess að verða á stuttum tíma sjálfbjarga í málinu alveg tilsagnarlaust eftir Jón Ólafsson, útgefna í Reykjavík af Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar 1890, og er hún með fallegri rithönd árituð: „Jósep B Gestsson Eskifirði árið 1922.“  Bókin er nokkuð lúð og liggur beint við að álykta að það sé eftir lestur Jóseps. 

                 Lúðvík Jósepsson, alþingismaður og ráðherra, var sonur hans utan hjónabands og hafði Jósep gengist við faðerninu. Það vakti sérstaka athygli mína hve sterkur svipur var með þeim feðgum. Ýmsir drógu faðerni þetta í efa án frambærilegrar ástæðu.  Í bók sinni Draumur og veruleiki segir Kjartan Ólafsson að fóstri Lúðvíks, sem bjó með móður hans í Neskaupstað, sé faðir hans vegna þess að þeir hafi verið svo líkir og rökstyður þá niðurstöðu sína ekki frekar.  Mér þykir líklegt að Lúðvík hafi vitað meira um faðerni sitt en Kjartan.

                Einar Bragi segir svo um Jósep í endurminningabók sinni, Af mönnum ertu kominn:  „Skömmu eftir að faðir minn tók einn við Bergþóruútgerðinni fór hann á Hornafjarðarvertíð og var legið við í Miklagarði sem áður.  Við landformennsku af Kristjáni tók Jósep Gestsson.  Hann var faðir Lúðvíks Austfjarðagoða sem allir þekkja.  Jósep átti heima á Eskifirði nær alla ævi: hversdagsgæfur maður, vel verki farinn, hverjum manni röskari að beita og yfirleitt hinn vaskasti í hvívetna meðan hann var og hét.  En gamli Bakkus lék hann grátt sem margan góðan dreng og mörg seinustu árin var hann sem skuggi af sjálfum sér.“   

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅