Neyddist til að mæta í vinnuna í bleyju: „Bjóst aldrei við því“

Dagbjört Barringer Gunnarsdóttir segist hafa þurft að snúa aftur til vinnu í Bandaríkjunum, enn í bleyju eftir fæðinguna og með brjóstabólgur, á meðan fyrirburasonur hennar, Óðinn, lá á vökudeild. Hún hafði glímt við lífshættulega meðgöngueitrun en óttaðist að missa heilbrigðistryggingu fjölskyldunnar, sem hún treysti á vegna meðferðar sonarins.

Dagbjört segir frá reynslunni í viðtali í Dagmálum, en hún er nýflutt heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni eftir tólf ára búsetu í Bandaríkjunum. Þar var hún í draumastarfinu hjá bandarískri snyrtivörukeðju og hjónin höfðu komið sér vel fyrir. Þau höfðu keypt sér hús, voru í góðum störfum og höfðu lagt fyrir. Þau höfðu beðið með barneignir þar til þau töldu sig hafa gert „allt rétt“. Nú væri loksins rétti tíminn til að eignast barn. En á meðgöngunni breyttist allt.

Þorði ekki að hætta að vinna

Dagbjört greindist með meðgöngueitrun þegar hún var aðeins komin 19 vikur á leið. Blóðþrýstingur hennar var orðinn hættulega hár og læknar ráðlögðu henni að leggjast í rúmið. Hún taldi sig hins vegar ekki geta orðið við þeim fyrirmælum, enda var heilbrigðistrygging fjölskyldunnar bundin við starf hennar.

Samkvæmt bandarískum lögum átti hún rétt á allt að tólf vikna starfsvernduðu leyfi, en ef hún tæki það strax yrði það uppurið áður en barnið fæddist. Hún óttaðist því að missa vinnuna og þar með heilbrigðistrygginguna.

Dagbjört segir frá ótrúlegri reynslu sinni af bandaríska kerfinu í Dagmálum. Hún neyddist meðal annars til að mæta í vinnu, þvert á ráðleggingar lækna, með lífshættulega meðgöngueitrun. mbl.is/Kristófer Liljar

Kallaði á hjálp á íslensku 

Dagbjört hélt því áfram að vinna þrátt fyrir alvarlega meðgöngueitrun, þrálátan höfuðverk og sjóntruflanir. Hún þurfti jafnframt nokkrum sinnum að fara með sjúkrabíl á sjúkrahús vegna veikindanna.

Þegar hún var komin 34 vikur á leið versnaði líðan hennar skyndilega í vinnunni. Hún fann málmlykt og sá ljósblossa fyrir augunum. Hún áttaði sig á að eitthvað alvarlegt væri að gerast og náði að kalla eftir hjálp í talstöðina.

„Og ég kalla bara hjálp á íslensku inn í talstöðina og enginn skilur það eða veit hvar ég er eða neitt,“ segir hún.

Í kjölfarið fékk hún skyndilegan og gríðarlegan höfuðverk, sem er það síðasta sem hún man eftir. Þegar hún fannst á gólfinu hafði hún bæði kastað upp og misst þvag. Hún var flutt á sjúkrahús, þar sem blóðþrýstingur hennar mældist 198 yfir 165. Dagbjört var þá í lífshættu og var fæðingin gangsett.

Óttaðist um soninn

Óðinn fæddist fyrir tímann og þurfti að dvelja á vökudeild. Dagbjört hafði þá þegar nýtt stóran hluta leyfisins vegna veikindanna á meðgöngunni og segist því hafa þurft að snúa strax aftur til vinnu þótt hún væri enn að jafna sig eftir fæðinguna og veikindin.

Hún óttaðist að ef hún mætti ekki til vinnu myndi fjölskyldan missa heilbrigðistrygginguna og þar með möguleikann á að tryggja syni sínum áframhaldandi meðferð á vökudeild.

Dagbjört segir reynsluna hafa opnað augu hennar fyrir því hversu fljótt aðstæður geta breyst í Bandaríkjunum, jafnvel þótt fólk hafi komið sér vel fyrir.

Dagbjört segir frá reynslu sinni í viðtali í Dagmálum, en hún er nýflutt heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni eftir tólf ára búsetu í Bandaríkjunum. mbl.is/Kristófer Liljar

„Maður flýgur svo hátt“

„Og kerfið bara er svona. Þetta er svo, þetta er svo æðislega gott og maður flýgur svo hátt og það er svo geggjað. En ég bjóst aldrei við því að ég myndi vera send í vinnuna svona af því ef ég færi ekki myndi ég missa heilbrigðistrygginguna,“ segir Dagbjört í viðtalinu.

Þótt hún sé þakklát fyrir öll tækifærin sem henni buðust í Bandaríkjunum segist hún nú kunna betur að meta öryggið og stuðninginn sem fjölskyldan nýtur á Íslandi.

„Kerfið sýndi mér þá, þetta er mjög grimmt. Það er engin hjálp. Það er enga hjálp að fá,“ segir Dagbjört.

Í myndskeiðinu hér að ofan segir Dagbjört nánar frá veikindunum og þeirri erfiðu stöðu sem fjölskyldan stóð frammi fyrir.

Hægt er að horfa á viðtalið við Dagbjörtu í heild sinni hér. Einnig er hægt að fylgjast með Dagbjörtu á TikTok.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅