Jónsi kominn með nýja vinnu
Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi Í svörtum fötum, hefur hætt störfum hjá Aurbjörgu þar sem hafði starfað síðan í maí 2023.
Frá þessu greinir Jónsi á Linkedin um helgina.
Jónsi mun nú hefja störf sem þjónustustjóri á tryggingasviði Landsbankans.
Tók armbeygju númer sjö þúsund
Seinasti vinnudagur Jónsa var á föstudaginn en hann segist vita að allt verði áfram í góðum höndum hjá fyrirtækinu, enda eigi vörur þess sér engan líka á Íslandi.
„Ég finn það í hjartanu mínu að Aurbjörg er og á eftir að gerbylta fjármálahugsun einstaklinga enn frekar á Íslandi næstu árin og áratugina,“ segir í færslunni.
Jónsi er þekktur fyrir að vera hress og skemmtilegur og virðist hann því hafa átt gott skap með vinnufélögum sínum í Aurbjörgu ef marka má færsluna.
„Fyrir utan öll mögnuðu verkefnin og sóknina, þá er þetta samheldinn vinnustaður sem hefur farið í gusur og fullorðinsfimleika og klifur og parkour og eldað saman og alls konar. Armbeygjuskjalið sem ég opnaði á fyrsta degi mínum í maí 2023 hefur verið vel nýtt og ég kláraði 7000ustu armbeygjuna á lokadeginum - bara til að tékka í boxið,“ skrifar hann.
Að lokum hvetur Jónsi fyrrverandi vinnufélaga sína til þess að taka stigann í stað lyftunnar í húsnæði Aurbjargar en fyrirtækið er með skrifstofur á sjöttu hæð í Lágmúla 9 í Reykjavik.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗