Risabardagi Kolbeins í Þýskalandi
Íslenski hnefaleikappinn Kolbeinn Kristinsson mun stiga inn í hringinn í Þýskalandi í sínum stærsta bardaga á ferlinum 28. nóvember n.k.
Kolbeinn mætir þar heimamanninum Granit Shala (18-2) í þungavigt en sama kvöld mun ríkjandi heimsmeistari Agit Kabayel verja WBC þungavigtarbeltið sitt.
Kolbeinn er enn ósigraður í hnefaleikum en hann fær hér tækifæri til að berjast á einu af stærstu sviðum heimsins, vekja athygli á sér og færa sig upp heimsstyrkleikalistann í hnefaleikum.
Með sigri gegn Granit Shala færir hann sig mjög nálægt tækifæri til að berjast um þungavigtartitilinn.
DAZN, stærsti sýningaraðili hnefaleika, mun sýna frá kvöldinu en einnig er gert ráð fyrir sextíu þúsund mans í salnum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/96/1689657.jpg)