Allir hópar færðu sig til vinstri

Demókratinn Abdul El-Sayed sigraði fyrrverandi þingmann Repúblikanaflokksins, Mike Rogers, í kosningu um sæti Michigan, en sigur hans er af mörgum talinn til marks um vinstri bylgju í Bandarískum stjórnmálum. AFP

Kjósendur í öllum lýðfræðilegum hópum í Bandaríkjunum sveifluðust til vinstri, í átt að Demókrataflokknum, óháð kynþætti, aldri, kyni og menntun, í nýafstöðnum þingkosningum þar í landi.

Þetta kemur fram í úttekt New York Times.

Viðsnúningurinn var mest áberandi meðal ungra kjósenda og kjósenda af öðrum kynþætti en hvítum en stuðningur þessara tveggja hópa við Repúblikana er sagður hafa ráðið úrslitum um sigur Donalds Trumps í forsetakosningunum 2024.

Hvítir kjósendur án háskólaprófs, sem oft eru taldir traustir stuðningsmenn Repúblikanaflokksins, tóku sömuleiðis skarpa beygju til vinstri.

Meiri stuðningur en 2020

Í úttektinni kemur fram að ungir kjósendur hafi verið líklegastir til að færa sig frá repúblikönum til demókrata og þá sérstaklega ungir karlmenn.

Í forsetakosningunum árið 2020 sigraði Joe Biden meðal ungra hvítra kjósenda, en þeir sveifluðust í átt að repúblikönum árið 2024 og Trump sigraði meðal þeirra með naumindum.

Í ár endurheimtu demókratar umtalsvert forskot í þessum hópi og var stuðningurinn nú meiri en árið 2020.

Minni sveifla meðal háskólamenntaðra 

Sveifla kjósenda af rómönskum uppruna til hægri átti sömuleiðis veigamikinn þátt í sigri Trumps árið 2024 en í ár var það sami hópur sem sveiflaðist mest til vinstri af öllum kynþátta- eða þjóðernishópum.

Sú sveifla var enn meiri meðal ungra karla af rómönskum uppruna.

Hvítir kjósendur án háskólamenntunar hafa verið burðarásar stuðningsmanna Trumps frá því að þeir sveifluðust í átt að Repúblikönum í kosningunum 2016. Í gærkvöldi sveiflaðist sá hópur hins vegar meira til vinstri en hvítir háskólamenntaðir kjósendur.

Sveiflan til vinstri var hvað minnst meðal svartra kjósenda en hafa ber í huga að minna svigrúm er fyrir demókrata til að bæta við sig fylgi í þeim hópi þar sem forsetaframbjóðandi þeirra, Kamala Harris, hlaut um 86 prósent atkvæða svartra kjósenda árið 2024.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅