Einar Örn: Að vera Nakinn í Paradís þegar Jólin eru að koma

Einar Örn Jónsson hefur komið víða við á tónlistarferlinum. Með Í svörtum fötum upplifði hann annasama tíma, ótrúleg ferðalög og óvæntar uppákomur á leiðinni á milli tónleikastaða. Í dag starfar hann með ýmsu af vinsælasta tónlistarfólki landsins og undirbýr eigin jólatónleika, Einar um jólin, sem verða í Austurbæ þann 11. desember.

Í viðtali við hlaðvarpið Popparasögur fer Einar Örn yfir ferilinn með Í svörtum fötum, allt frá fyrstu skrefunum til skelfilegra flugferða, frá Verkefni eitt til þess að vera bestir á balli. Hann segir einnig frá upphafinu á Blönduósi, tónlistinni í MA, kvöldunum á Lækjarbrekku, sólóplötunni sem hann gaf út 19 ára gamall, vinsælasta íslenska jólalaginu sem hann samdi, samstarfinu við stærsta tónlistarfólk landsins og Einari um jólin.

Textinn átti að fjalla um allt annað

Einar Örn samdi textann við eitt vinsælasta lag hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, Nakinn, og segir að hugmyndin hafi í fyrstu verið allt önnur. Hann sótti innblástur í ævintýrið um Nýju föt keisarans og lagið Apaspil með Nýdönsk.

„Upphaflega pælingin mín var að vera með einhvern svipaðan boðskap og Apaspil með Nýdönsk eða eitthvað. Að keisarinn sé ekki í neinum fötum og af hverju ertu að elta einhverja tískustrauma í blindni,“ segir Einar Örn í Popparasögum. „Þetta þróaðist dálítið eiginlega yfir í annað Nýdanskt lag, sko, Kirsuber. Þannig að það breyttist bara í eitthvað svona dæmigert svona: „Ég þrái þig“.“

Einar segir að tíðarandinn árið 2001 hafi líka verið annar en í dag. Lagið hafi þótt grípandi og vakið athygli. „Ég held að Jónsi sé duglegur að minna fólk á að það hafi verið ég en ekki hann sem samdi textann. Þannig að ég stend bara og fell með þessum texta,“ segir Einar og hlær.

Í svörtum fötum var stór hluti af lífi Einars á árunum 2001 til 2011 og í raun allt til ársins 2018 þegar hljómsveitin fór í pásu sem enn er í gangi. Hljómsveitin lék víða um land, kom fram á Þjóðhátíð árum saman og varð þekkt fyrir að vera best á balli, titill sem hljómsveitarmeðlimir tóku alvarlega.

Einar segir að hann hafi sjálfur mikinn áhuga á því að koma hljómsveitinni aftur saman. Það sé þó ekki ákvörðun sem einn maður geti tekið. „Ég tala fyrir mig, ég er mjög spenntur fyrir einhvers konar comebacki. Það verður bara að koma í ljós. Við verðum allir fimm að vera til í það,“ segir Einar í viðtalinu. „Það væri alveg meiriháttar að ná okkur saman.“

 

Ellefu klukkustundir í Herjólfi

Það var ekki alltaf einfalt að spila á dansleikjum og tónleikum vítt og breitt um landið. Í svörtum fötum var mikið á ferðinni og stundum reyndi verulega á bæði hljómsveitina og starfsfólkið í kringum hana. Vetraraksturinn gat verið erfiður, rútur biluðu og stundum þurfti aðstoð björgunarsveita til að komast á áfangastað.

Á leiðinni til Ísafjarðar kom meðal annars fyrir að ekkert flug var í boði og þá þurfti einfaldlega að keyra. Í öðrum ferðum þurfti björgunarsveit að koma til hjálpar þegar hljómsveitin festist í snjóskafli. „Þessi vetrarakstur í þessum rútum, endalaust vesen. Þetta var síbilandi,“ segir Einar og rifjar upp ferðir þar sem sveitin var enn að koma hljóðfærum og græjum fyrir þegar fyrstu gestirnir voru farnir að tínast inn í húsið.

Vestmannaeyjar komu líka við sögu í ferðasögum sveitarinnar. Eitt sinn var hljómsveitin á leið frá Eyjum eftir ball þegar veðrið kom í veg fyrir að Herjólfur gæti siglt inn í Þorlákshöfn. Skipið beið úti fyrir höfninni í fjóra til fimm tíma áður en því var snúið aftur til Vestmannaeyja. „Ellefu tímum síðar komum við aftur til Vestmannaeyja,“ segir Einar.

Hann lýsir ferðinni sem hreinsun og eins konar „detox“-upplifun sem hafi gert hljómsveitarmeðlimina nánari. Það hafi þó ekki dugað til að fæla þá frá næstu ferð. „Við förum aldrei aftur út á land,“ segir hann í gríni, áður en hann bætir við að þeir hafi svo bara farið aftur næstu helgi.

Önnur ferð var ekki síður eftirminnileg. Hljómsveitin hafði spilað á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum á laugardegi og átti að vera á Neistaflugi í Neskaupstað á sunnudegi. Áætlunin var að flugvél ætti að sækja þá til Eyja og fljúga með þá austur. En veðrið í Eyjum var svo slæmt að ekkert flug var mögulegt og hljómsveitin fór að kanna hvort hægt væri að taka Herjólf og aka austur.

Þá barst símtal frá flugmanninum sem var kominn til Vestmannaeyja og tilbúinn að sækja þá. Hljómsveitin fór á flugvöllinn, tók með sér nauðsynlegasta farangurinn og fyllti vélina. En veðrið var enn mjög slæmt og mikill vindur í Vestmannaeyjum.

„Vélin bara fýkur bara upp. Og um leið og hann er kominn í loftið þá bara stoppar hann og það er bara stallviðvörun í gangi og við höldum að það sé okkar síðasta,“ segir Einar. En á síðustu stundu tókst flugmanninum að rétta vélina af og koma þeim örugglega á leiðarenda.

Þeir voru því fegnir að hafa komist austur og sáu fram á að geta flogið heim strax eftir ballið. Sú áætlun gekk þó ekki eftir. Eftir dansleikinn kom í ljós að gestur hafði slasast eftir að hafa „dansað á vegg“ og þurfti að flytja hann með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Flugvélin sem átti að sækja hljómsveitina þurfti því að sinna sjúkrafluginu. „Við þurftum að bíða bara til hádegis daginn eftir til þess að komast loksins heim,“ segir Einar.

Jólalag samið í maí

Eitt þekktasta lag sem Einar hefur samið er Jólin eru að koma með Í svörtum fötum. Lagið kom út árið 2001 og hefur haldið vinsældum sínum allar götur síðan. Það sem færri vita er að Einar samdi það í maí þegar hljómsveitin fékk það verkefni að semja jólalag fyrir fjáröflunarplötu Íþróttasambands fatlaðra.

„Við strákarnir í hljómsveitinni fengum bara verkefni, allir að prófa að semja jólalag,“ segir Einar. Honum fannst nokkuð sérstakt að vera að semja jólalag á þessum árstíma. Hann man eftir því að hafa gengið um heima og raulað lagið, sem vakti nokkra undrun á heimilinu.

Um aldarfjórðungi síðar lifir lagið enn góðu lífi. Einar telur að það sé líklega eitt mest spilaða íslenska jólalagið á Spotify þegar horft er til heildarspilana frá upphafi, meðal laga sem eru samin af Íslendingum og hafa orðið til hér á landi. „Þannig að maður er stoltur af því.“

Undanfarin fjögur ár hefur desemberbarnið Einar Örn séð um jólatónleika fyrir starfsfólk Orkuveitunnar undir yfirskriftinni „Einar um jólin“. Þar hefur hann safnað saman hópi þekktra söngvara og hljóðfæraleikara og sett upp tónleika í Háskólabíói. Tónleikarnir hafa gengið vel og fólk utan vinnustaðarins hefur einnig sýnt þeim áhuga. Því ákvað hann að taka næsta skref og halda tónleikana fyrir almenning í Austurbæjarbíói þann 11. desember.

Einar leggur áherslu á að tónleikarnir séu fjölbreyttir og að stemningin haldist góð frá upphafi til enda. Hann hefur fengið til liðs við sig marga af þekktustu tónlistarmönnum landsins. Meðal gesta á tónleikunum í ár eru Sigga Beinteins, Dagur Sigurðsson og Diljá Pétursdóttir, auk leynigesta. „Ég er að hugsa um þetta hálft árið,“ segir hann um undirbúninginn. Hann vonast til að „Einar um jólin“ verði árlegt verkefni sem hann geti þróað áfram.

Fjölbreytt samstarf undanfarin ár

Frá því að Í svörtum fötum drógu saman seglin árið 2011 hefur Einar starfað með fjölbreyttum hópi tónlistarfólks. Hann hefur dottið inn sem sessjónmaður eða afleysingamaður með öðrum hljómsveitum og tónlistarmönnum, meðal annars Stuðlabandinu, Ingó Veðurguði og Eyva Kristjánssyni.

Samstarfið við Stuðlabandið hefur einnig verið áhugavert fyrir hann. Hann lýsir hljómsveitinni sem afar faglegri, þar sem æft sé reglulega, utanumhald sé gott og metnaðurinn mikill. Hann segir að það hafi verið ákveðin tímavél að koma inn í slíkt umhverfi og sjá hvernig hljómsveitin vinnur. „Þeir eru svolítið á þessum stað sem maður var sjálfur á 2004 eða eitthvað,“ segir hann.

Þrátt fyrir langan feril og mörg verkefni er Einar ekki á leiðinni að leggja hljóðfærin á hilluna. Hann hefur gefið út tónlist undir nafninu Löður og er nú meðal annars að vinna að jólalagi með Diljá Pétursdóttur sem ber heitið „Það eru jól og hjarta verður hlýtt“.

Einar telur að íslenskir tónlistarmenn séu í einstakri stöðu þegar kemur að tækifærum til að koma fram og afla sér tekna af tónlist. Þótt tónlistarbransinn hafi breyst mikið frá þeim tíma þegar sveitaböll voru haldin um allt land, segir hann enn vera fjölmörg tækifæri fyrir tónlistarfólk.

„Ég held að íslenskir tónlistarmenn séu afskaplega heppnir með þetta umhverfi sem við erum með hérna á landinu,“ segir hann. Miðað við um 400 þúsund manna þjóð geti ótrúlega margir haft lifibrauð af því að spila tónlist, að minnsta kosti í popp- og rokkbransanum.

Að hans mati hefur eðli gigganna þó breyst. Sveitaböllin eru ekki lengur jafn stór hluti af starfinu og áður. Í staðinn eru tónlistarmenn í auknum mæli fengnir til að spila á hátíðum, fyrirtækjaviðburðum, afmælum, brúðkaupum og öðrum lokuðum viðburðum. „Núna eru sko sveitaböllin eiginlega haldin bara í Hörpu og Háskólabíói,“ segir Einar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅