Flúði ástandið í Sádí Arabíu og tók börnin með sér

Ellie Watkins, eiginkona enska landsliðsframherjans Ollie Watkins, hefur yfirgefið Sádi-Arabíu ásamt tveimur börnum þeirra vegna vaxandi átaka í Mið-Austurlöndum.

Watkins gekk til liðs við Al-Hilal frá Aston Villa í sumar fyrir 51 milljón punda og flutti fjölskyldan til Riyadh.

Nú hefur Ellie hins vegar ákveðið að snúa aftur til Englands með börnin, fimm og þriggja ára, eftir mannskæðar eldflaugaárásir í Sádi-Arabíu.

„Það hefur orðið óvænt breyting á áætlunum. Ég er komin aftur til Bretlands og veit ekki alveg hversu lengi við verðum hér,“ sagði Ellie á TikTok.

„Við ákváðum að vera hér þar til ástandið róast. Mér fannst ég þurfa að gera þetta fyrir börnin svo þau gætu upplifað einhverja eðlilega rútínu.“

Watkins verður áfram í Sádi-Arabíu og leikur með Al-Hilal.

Englendingurinn hefur byrjað vel hjá félaginu og skorað fimm mörk og lagt upp önnur fimm í átta deildarleikjum.

Óvíst er hvenær fjölskyldan getur sameinast á ný í Riyadh.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅