Ísland - Úkraína, staðan er 46:24

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann afar sannfærandi sigur á því úkraínska er liðin mættust í fyrsta leik undankeppni EM 2028 í Laugardalshöll í kvöld. Urðu lokatölur 48:26.

Íslenska liðið var með yfirburði frá fyrstu mínútu og var staðan 7:3 eftir tíu mínútur. Munurinn var tíu mörk í fyrsta skipti í stöðunni 14:4 eftir 17 mínútur.

Ísland hélt áfram að keyra yfir Úkraínu það sem eftir lifði fyrri hálfleiks með glæsilegum sóknarleik og öflugum varnarleik þegar á þurfti að halda.

Bjarki Már Elísson með eitt af sex mörkum sínum úr jafn mörgum skotum í fyrri hálfleik. mbl.isEyþór Arnason

Þegar uppi var staðið munaði 14 mörkum í hálfleik, 23:9. Ómar Ingi Magnússon og Bjarki Már Elísson voru markahæstir með sex mörk hvor og Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði fimm.

Íslenska liðið hélt áfram að bæta í forskotið í seinni hálfleik og var munurinn 20 mörk, 35:15, þegar seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður.

Liðin skiptust nokkurn veginn á því að skora eftir það og afar þægilegur íslenskur sigur varð raunin.

Gísli Þorgeir Kristjánsson brýst í gegnum vörn Úkraínu.

Gísli Þorgeir Kristjánsson brýst í gegnum vörn Úkraínu. mbl.is/Eyþór Arnason

Ómar Ingi Magnússon, Reynir Þór Stefánsson og Bjarki Már Elísson voru markahæstir hjá íslenska liðinu með sex mörk hver. Óðinn Þór Ríkharðsson gerði fimm mörk.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅