Undraverður árangur Svía sem vann New York-maraþonið
Svíinn Andreas Almgren, sem er 31 árs, gerði sér lítið fyrir og vann New York-maraþonið í frumraun sinni í keppnishlaupi í maraþonum á sunnudaginn.
Hann er fyrsti Svíinn til þess að vinna hlaupið og líka fyrsti Svíinn til þess að vinna eitt af stóru maraþonunum.
Tíminn var 2:06:01 eða tvær klukkustundir, sex mínútur og ein sekúnda. Andreas átti sögulega góðan lokasprett í hlaupinu.
Á brons í 10 kílómetrum
Andreas, sem hefur fræðilegan bakgrunn í tölvunarfræði, hefur ekki langan feril að baki í maraþonhlaupum.
Hann keppti áður í styttri hlaupum og vann til að mynda brons í 10 km hlaupi á heimsleikunum í Tókýó í fyrra. Hann var þá fyrsti Svíinn til þess að vinna medalíu í útihlaupum á heimsmeistaramótinu.
Skömmu eftir sigurinn var hann staddur í New York og fylgdist þá með keppendum hlaupsins sem áhorfandi. Þá fékk hann þá hugmynd að hann vildi sjálfur taka þátt og sendi umboðsmanni sínum skilaboð um að á næsta ári skyldi hann gera það.
Svíinn hefur þó líka keppt í styttri vegalengdum eins og í 800 metra hlaupi. Andreas átti til að mynda að fara á Ólympíuleikana í Tókýó árið 2021 en meiðsli komu í veg fyrir það.
Árið 2024 átti hann að keppa í 5.000 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í París en dró sig úr keppni á síðustu stundu vegna meiðsla.
Andreas Almgren og Sheila Chepkirui tóku á móti verðlaunapeningum í New York. Chepkirui er frá Keníu og vann maraþonið í kvennaflokki. AFP/Calbe Bowlin
Ótrúlegur lokasprettur
Andreas náði undarverðum árangri í lok hlaupsins þegar hann hljóp hröðustu tvo síðustu kílómetra sem hlaupnir hafa verið í maraþoni á eftir ríkjandi heimsmethafa, Sabastian Sawe frá Keníu, sem hefur hlaupið vegalendinga á undir tveimur klukkustundum.
Síðustu tvo kílómetrana hljóp hann á 6 mínútum og einni sekúndur en Sawe hefur áður hlaupið þá á 5 mínútum og 51 sekúndu.
Svíinn stakk þá aðra keppendur af og hljóp um tíma einn án annarra hlaupara í kringum sig. Yemaneberhan Crippa, frá Ítalíu, lenti í öðru sæti og hljóp á 2:06:14 og kom í mark 13 sekúndum seinna en Andreas.
Erfitt hlaup
Hlaupið í New York, sem teygir sig yfir alla fimm borgarhluta, mætti segja að sé krefjandi miðað við mörg önnur maraþon.
Það hefst á mikilli hækkun sem setur tóninn fyrir hlaupið þar sem hlauparar hlupu 42,195 kílómetra eins og venja er fyrir.
Í maraþonum borga eins og Berlínar og Chicago er hækkunin og lækkunin aðeins um fimmtungur af því sem hún er í New York.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

