Ísland - Úkraína, staðan er 31:13
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann afar sannfærandi sigur á því úkraínska er liðin mættust í fyrsta leik undankeppni EM 2028 í Laugardalshöll í kvöld. Urðu lokatölur 48:26.
Íslenska liðið var með yfirburði frá fyrstu mínútu og var staðan 7:3 eftir tíu mínútur. Munurinn var tíu mörk í fyrsta skipti í stöðunni 14:4 eftir 17 mínútur.
Ísland hélt áfram að keyra yfir Úkraínu það sem eftir lifði fyrri hálfleiks með glæsilegum sóknarleik og öflugum varnarleik þegar á þurfti að halda.
Bjarki Már Elísson með eitt af sex mörkum sínum úr jafn mörgum skotum í fyrri hálfleik. mbl.isEyþór Arnason
Þegar uppi var staðið munaði 14 mörkum í hálfleik, 23:9. Ómar Ingi Magnússon og Bjarki Már Elísson voru markahæstir með sex mörk hvor og Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði fimm.
Íslenska liðið hélt áfram að bæta í forskotið í seinni hálfleik og var munurinn 20 mörk, 35:15, þegar seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður.
Liðin skiptust nokkurn veginn á því að skora eftir það og afar þægilegur íslenskur sigur varð raunin.
Ómar Ingi Magnússon, Reynir Þór Stefánsson og Bjarki Már Elísson voru markahæstir hjá íslenska liðinu með sex mörk hver. Óðinn Þór Ríkharðsson gerði fimm mörk.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
