Emelía lagði upp bæði mörkin í bikarsigri
Landsliðskonan Emelía Óskarsdóttir lagði upp bæði mörk Köge í 2:0-sigri á Nordsjælland í dönsku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld.
Emelía lék fyrstu 77 mínúturnar og lagði upp bæði mörk liðsins. Það fyrra kom á 29. mínútu og það síðara þegar fjórar mínútur voru liðnar af síðari hálfleik.
Köge er komið í átta liða úrslit keppninnar en liðið er í toppsæti dönsku úrvalsdeildarinnar sjö stigum á undan Nordsjælland.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗