Réttarhöld að hefjast: Þekktur maður sakaður um ölvunarakstur - Keyrði á konu sem lést

Hörður Snævar Jónsson

Miðvikudaginn 4. nóvember 2026 20:30

Victoria Cairns, fórnarlambið.

Kyle Hutton, fyrrverandi leikmaður skoska stórliðsins Rangers, hefur verið ákærður fyrir að valda dauða fertugrar konu í umferðarslysi í Skotlandi.

Hutton, sem er 35 ára, er sakaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna þegar hann ók á Victoriu Cairns í Rutherglen, skammt frá Glasgow, þann 2. nóvember 2024.

Cairns hlaut alvarlega áverka og lést á sjúkrahúsi fjórum dögum síðar.

Samkvæmt ákæru ók Hutton of hratt miðað við aðstæður og sýndi ekki nægilega aðgát. Hann er sakaður um að hafa ekki orðið var við konuna á veginum áður en hann ók á hana.

Hutton er einnig ákærður fyrir að hafa neitað að gangast undir áfengis- og fíkniefnapróf lögreglu.

Hann neitar sök í málinu.

Málið var tekið fyrir í dómstól í Glasgow þar sem ákveðið var að aðalmeðferð fari fram í febrúar 2028.

Réttarhöldin gætu staðið yfir í fjóra daga en Hutton er laus gegn tryggingu þar til þá.

Hutton lék með Rangers á árunum 2010 til 2015 en hann hefur einnig leikið með St Mirren, Dumbarton og Partick Thistle á ferlinum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅