Real Madrid marði sigur í Grikklandi

Brassinn Eder Militao og Úrúgvæinn Federico Valverde fagna í kvöld. Valverde skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma. AFP/Aris Messinis

Real Madrid hafði betur gegn AEK Aþenu, 3:2, þegar liðin mættust í fjórðu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í Aþenu í Grikklandi í kvöld.

Real Madrid er áfram með fullt hús stiga, 12 stig eftir fyrstu fjóra leikina, og í öðru sæti deildakeppninnar. AEK er hins vegar með þrjú stig í 30. sæti.

Heimamenn komust tvisvar yfir í leiknum en spænska stórliðið sýndi mikinn karakter og tryggði sér sigurinn á lokamínútunum.

Aboubakary Koita kom AEK yfir á 12. mínútu en Jude Bellingham jafnaði metin fyrir Real Madrid með glæsilegu marki á 32. mínútu. Stavros Pilios kom Grikkjunum aftur yfir í síðari hálfleik en Kylian Mbappé jafnaði á ný.

Federico Valverde reyndist hetja Real Madrid þegar hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅