Farþegar með einkaþotum fá þessa hjá mömmu Adams
Matur | mbl | 4.11.2026 | 20:00
Adam Karl Helgason bakar hér köku með sögu en þetta er kaka sem á heima á fyrsta farrými. Samsett mynd
Dökkt súkkulaði, mjúk karamella og örlítið lakkríssalt gera þessa frönsku súkkulaðiköku að freistingu sem þarf enga sérstaka viðhöfn. Nafnið gefur þó annað til kynna: Hún heitir Private Jet Cake, eða einkaþotukakan, enda færir móðir Adams Karls Helgasonar gestum sem koma með einkaþotum þessa köku.
Uppskriftin er fjölskylduuppskrift sem Adam deilir á Instagram. Lakkríssalt fer í kökuna sjálfa og er einnig stráð yfir karamelluna í lokin. Hér mætast því dökkt súkkulaði, sæt karamella og saltur lakkrískeimur í hverri sneið.
Einkaþotukakan
- 200 g dökkt súkkulaði
- 200 g smjör
- 200 g púðursykur
- 3 egg
- 2 tsk. vanilluþykkni
- 100 g hveiti
- 3 klípur lakkríssalt
Sölt karamella
- 300 g sykur
- 110 ml vatn
- 150 ml rjómi
- 75 g smjör
- 1–2 klípur lakkríssalt til að strá yfir
Í Instagram-myndbandinu hér að ofan sýnir Adam Karl hvernig hann útbýr kökuna og karamelluna.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗