Snýr aftur í hringinn á aðfangadag
Íþróttir | mbl | 4.11.2026 | 19:45
Bandaríski hnefaleikakappinn og áhrifavaldurinn Jake Paul hefur staðfest að hann snúi aftur í hringinn 24. desember næstkomandi. Bardaginn fer fram í Dúbaí en ekki hefur verið tilkynnt hver verður andstæðingur hans.
Paul, sem er 29 ára, hefur ekki barist síðan hann tapaði fyrir fyrrverandi heimsmeistaranum Anthony Joshua í desember síðastliðnum.
Joshua hafði betur með rothöggi í sjöttu lotu og kjálkabrotnaði Paul í bardaganum. Hann þurfti að gangast undir aðgerðir í kjölfarið og óvissa ríkti um hvort hann myndi halda áfram hnefaleikaiðkun.
Paul segist hungraðri en nokkru sinni fyrr og tilbúinn að hefja næsta kafla ferilsins. Hann hefur áður mætt nokkrum þekktum bardagamönnum úr UFC, auk fyrrverandi heimsmeistara á borð við Mike Tyson og Julio César Chávez yngri.
Ekki hefur verið staðfest hvar hægt verður að horfa á bardagann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗