Drottningin skíthrædd við að fljúga

Camilla Bretadrottning neyðist stundum til þess að ferðast með eiginmanni sínum en er alls ekki hrifin af því. AFP/Chris Jackson

Karl Bretakonungur fór nýlega í opinbera heimsókn í Karíbahafið. Camilla Bretadrottning var með honum í lok ferðarinnar en hún er talin hafa ákveðið að mæta of seint vegna flughræðslu. 

Karl konungur heimsótti nokkur lönd í ferðinni og þurfti þess vegna að stíga nokkrum sinnum upp í flugvél í ferðinni. Á vef breska miðilsins Express kemur fram að ekki hafi komið fram af hverju Camilla hafi ekki fylgt eiginmanni sínum allan tímann.

Því er haldið fram að ástæðan sé flughræðsla Camillu. Með því að mæta í lok ferðarinnar þurfti Camilla aðeins að fljúga til Antigua og Barbúda og aftur til baka til Bretlands. Karl þurfti hins vegar að fljúga á milli landa með smærri vélum. 

Fór fyrr heim frá Ástralíu

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem flughræðsla Camillu kemur upp en hún sleppur því stundum að ferðast með eiginmanni sínum. Á vef Hello er rifjað upp þegar hún fór fyrr hem frá Ástralíu árið 2018. Þá sagði talsmaður hennar að hún væri hrædd við að fljúga. 

Camilla Bretadrottning og Karl Breakonungur voru í Karíbahafinu. Camilla sleppti nokkrum flugferðum. AFP/ Isabel Infantes

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅