Fá skilaboð um tannlæknatíma og krílamorgna þó að dóttirin sé látin – „Það er verið að slá fólk niður aftur og aftur“
Eftir að Björg Jóhannsdóttir og Orri Bergmann Valtýsson misstu dóttur sína, Júlíönu Rut, skömmu eftir fæðingu fyrir rúmum tveimur árum síðan hafa þau ítrekað fengið bréf og áminningar sem ýfa upp gömul sár. Meðal annars áminningar um tannlæknatíma og boð um að kaupa námskeið eða bóka krílatíma.
Björg segir skrýtið að kerfin tali ekki saman og að syrgjandi foreldrar séu ítrekað minntir á missi sinn, jafn vel löngu seinna þegar þeir búast ekki við því. Kallar hún eftir úrbótum og samhæfingu kerfa til þess að koma í veg fyrir þetta.
„Ég veit ekki af hverju kerfin tala ekki saman. Það er furðulegt. Það er eins og þetta sé ekkert samtengt,“ segir Björg.
Björg og Orri misstu Júlíönu Rut, skömmu eftir fæðingu hennar í febrúar árið 2024. Þrátt fyrir að andlátið hafi verið opinberlega skráð eins og hjá öllum Íslendingum virðist það ekki hafa skilað sér. Hvorki til sveitarfélagsins, kirkjunnar, félaga eða jafn vel annarra ríkisstofnana.
Sífelldar áminningar
Björg greinir frá því að tveimur mánuðum eftir andlátið hafi foreldrarnir fengið nýburapakka frá Hafnarfjarðarbæ og hamingjuóskir með nýfædda barnið. En Hafnarfjarðarbær er eitt af þeim sveitarfélögum sem sendir nýbökuðum foreldrum „krúttkörfu“ með nauðsynjum fyrir ungabarn.
Tæpu ári eftir andlátið hafi þau svo fengið póst frá kirkjunni þar sem þeim var boðið á samverustundir, svokallaða krílamorgna til að hafa eitthvað að gera í fæðingarorlofinu.
Abler, kerfi sem skráir tómstundir og íþróttaiðkun, hafi ítrekað boðið foreldrunum að kaupa námskeið fyrir hana. Ítrekað hafa þau óskað eftir því við Abler að breyta þessu.
„Við höfum endurtekið talað við Abler en það hefur ekkert lagast. Kannski í mánuð en svo breytist það aftur,“ segir Björg.
Í gær, tveimur árum og átta mánuðum eftir andlát Júlíönu Rutar, fékk Björg bréf frá Sjúkratryggingum Íslands þar sem hún var minnt á að hún ætti að vera búin að panta tannlæknatíma fyrir hana. Eftir að foreldrarnir höfðu samband við stofnunina sendi hún afsökunarbeiðni í dag.
Erfiðast fyrst
„Mér finnst að við ættum ekki að þurfa að standa í því að tala við þessar stofnanir út af þessu,“ segir Björg.
Segist hún ekki vita hvar sökin liggur, það er hvort hún liggi hjá Þjóðskrá eða hjá einhverri annarri stofnun.
„Þetta var miklu erfiðara til að byrja með, sérstaklega fyrsta árið. Núna kemur meira upp reiði og maður er vonsvikinn út í kerfið. Þetta tekur alltaf á því maður er ekkert að búast við þessu. Til dæmis núna að ég sé minnt á að fara með barnið mitt til tannlæknis, sem ég get ekki,“ segir Björg. „Það þarf að laga þetta af því að fólk er í viðkvæmu ástandi. Það er verið að slá fólk niður aftur og aftur.“
Ekki einsdæmi
Mál Bjargar og Orra er heldur ekki einstakt eða einangrað tilfelli. Björg segist hafa heyrt af fleirum, meðal annars í gegnum samtökin Gleym Mér Ei, styrktarfélag fyrir foreldra sem hafa misst barn á meðgöngu og í eða eftir fæðingu.
„Það væri frábært ef það væri eitthvað hægt að gera til að kerfin töluðu saman. Mér finnst skrýtið að fólk geti yfir höfuð lent í þessu,“ segir Björg.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗