Frábær ferð til Kína

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra telur mikla möguleika felast í auknum samskiptum við Kína, en þar var hún í heimsókn í liðinni viku. Þar ræddi hún um kosti slíks við þarlend stjórnvöld. Mannréttindaástandið í Kína virðist hins vegar ekki hafa borið sérstaklega á góma.

Þetta kom fram í samtali mbl.is við utanríkisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í gær, en hún kvaðst hafa átt góðar viðræður við Wang Yi, utanríkisráðherra Kína.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Wang Yi, utanríkisráðherra Kína.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Wang Yi, utanríkisráðherra Kína. mbl.is/Baldur

Tækifæri í jarðhita og sjávarútvegi

„Við fórum yfir margt, meðal annars fríverslunarsamninginn, samskipti landanna á sviði menningar en ekki síst á sviði viðskipta,“ segir ráðherra, sem nefndi loftferðasamninga einnig í því samhengi.

„Við erum að sjá samvinnu, ekki síst á sviði fiskveiða eða sjávarafurða og síðan á sviði jarðhita, en Þorgerður sagði enn merki mikils uppgangs í Kína. Í því samhengi nefndi hún t.d. samvinnuverkefni Arctic Energy við kínverska risafyrirtækið Sinopec, sem vissi á gott.

Í Qingdao. Róbert Guðfinnsson stofnandi Genis, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Renke Nie, stjórnarformaður Biotemed og aðaleigandi, og Francis Chay framkvæmdastjóri Biotemed eftir undirritun samkomulagsins í höfuðstöðvum Biotemed í Qingdao. mbl.is/Baldur

Snertifletirnir væru fyrst og fremst jarðhiti og sjávarútvegur og mikil tækifæri á þeim risamarkaði. Hún hefði m.a. sótt sjávarútvegsráðstefnuna í Qingdao, sem væri sú nststærsta í heimi á eftir Barcelona, og ljóst að fiskneysla þar í landi færi mjög vaxandi, ekki síst á laxi, sem íslensk fiskeldisfyrirtæki ættu að geta notfært sér.

Flugleið til Kína greiðir götu

Í því samhengi sakaði ekki að hafið væri flug Air China milli landanna með viðkomu í Kaupmannahöfn, sem ætti að örva bæði útflutning og innflutning til Kína. Þorgerður Katrín ferðaðist sjálf þá leiðina heim frá Kína og þykir spennandi að sjá hvernig það fyrirtæki þróast.

Hún kvaðst mjög ánægð með ferð sína til Kína, sem hefði verið  jákvæð í alla staði.

Talað í kringum mannréttindi

Mannréttindi í Kína eru mörgum áhyggjuefni; gagnvart minnihlutahópum, í hinu hernumda Tíbet og í Hong Kong. Ráðherra var því spurður hvort hún hefði viðrað mannréttindamál við kínverska valdhafa.

„Já, við ræddum meðal annars og ég fór yfir setu okkar í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, hverjar áherslur okkar eru þar og síðan ræddum við líka loftslagsmál. Ég fór nú á sínum tíma til Kína 2008 og ég tók eftir því að það er mikil breyting á Peking og þeir hafa greinilega lagt sig í líma að takast á við þessar áskoranir sem eru í loftslagsmálum og vinna á mengun og allt í einu sá maður að það er fullt af fjöllum í kringum Peking sem ég sá ekki síðast.“

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking, höfuðborg Kína

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking, höfuðborg Kína mbl.is/Brynjar Gauti

Góð samskipti óháð ágreiningi um mannréttindi

En var bág virðing fyrir mannréttindum þar færð í tal?

„Jú, þeir vita alveg af okkar áhyggjum og þess vegna erum við meðal annars að ræða setu okkar í mannréttindaráðinu sem að einmitt dregur fram okkar áherslur í passa upp á réttindi minnihlutahópa innan ríkja, náttúrulega jafnrétti og fleira. Það var kannski það sem að við vorum sammála um að vera ósammála, það er ýmislegt, það eru ýmsar aðrar áherslur.

Við erum með mismunandi pólitísk kerfi, alveg augljóst. Því fylgja aðrar áherslur. Við erum með okkar og þau eru með þeirra, en það breytir ekki því að við getum haft eins og aðrar þjóðir viðskipti við Kína og reynt að efla tengslin. […] Erum við sammála öllu því sem er að gera? Nei, það vita þau en við getum átt engu að síður góð samskipti við Kína.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅