Bersýnilegt að pólitísk afskipti hafa aukist
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir bersýnilegt að pólitísk afskipti af Landsvirkjun hafi aukist eftir að fyrirkomulagi var breytt á þann hátt að ráðherra skipi alla stjórnarmenn fyrirtækisins.
Þetta sagði framsóknarmaðurinn í ræðu sinni á Alþingi í dag í kjölfar þess að Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti munnlega skýrslu um málefni Landsvirkjunar.
Styr hefur staðið um stjórn Landsvirkjunar frá því að Hörður Arnarson hætti sem forstjóri fyrirtækisins. Stjórnin hafði fundað ítrekað án Harðar og lýsti Hörður yfir áhyggjum af því að fyrirtækið yrði óstarfhæft sökum pólitískra afskipta.
Ósannsögli, afvegaleiðing og þöggun
Sigurður Ingi segir það áhyggjuefni hve léttvægt Daði taki umræðunni. Hann er á því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins eigi að fá öll gögn málsins og fara yfir það ítarlega.
„Ég verð að viðurkenna að á síðustu dögum hafa hlutir komið upp í hugann í tengslum við þetta mál eins og þöggun, afvegaleiðing umræðu og pólitísk afskipti. Maður getur líka velt fyrir sér: Hvert er tilefnið fyrir öllu þessu havaríi, öllum þessum fundum stjórnar Landsvirkjunar í ráðuneytinu með eða án ráðherrans? Og enn og aftur, ráðherrann og ráðuneytið eru eitt og hið sama. Mér finnst ráðherrann taka því dálítið léttvægt,“ sagði Sigurður Ingi.
Stjórnarandstöðuþingmenn hafa sakað Daða Má um að gera lítið úr ágreiningi Harðar og stjórnarinnar í óundirbúnum fyrirspurnartíma þann 19. október síðastliðinn.
„Ráðherra þarf að koma í þennan ræðustól og útskýra fyrir okkur af hverju hann sagði ekki allan sannleikann 19. október með þær upplýsingar sem við vitum í dag að hann hafði, því það er annars ósannsögli, það er annars afvegaleiðing, það er annars þöggun og það eru annars meint pólitísk afskipti. Það blasir við,“ segir fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins.
Vinnubrögð sem þekktust ekki í stjórnartíð Jens
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, saumaði einnig að fjármála- og efnahagsráðherra í ræðustól Alþingis í dag. Hann hóf reyndar ræðu sína á því að kalla ræðu Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Flokks fólksins, rafgeymasýru.
Jens Garðar telur þó ljóst að afskipti ráðherra og embættismanna af stjórn Landsvirkjunar væru með öllu óeðlileg. Daði hefði reynt að hylma yfir pólitísk afskipti af stjórninni með orðræðu um góða stjórnarhætti. Þess má geta að Jens Garðar sat áður í stjórn Landsvirkjunar og segist hann ekki kannast við vinnubrögð sem þessi í stjórnartíð sinni.
Jens Garðar telur Daða bera ríka ábyrgð á þeirri stöðu sem upp er komin.
„Hann og ráðuneyti hans funduðu með stjórn níu sinnum og höfðu óeðlileg pólitísk afskipti af rekstri og stjórn félagsins. Hann sagði ósatt um vitneskju sína hér í ræðustól Alþingis um málið.“
„Heldur ráðherrann að við séum einhverjir bjánar?“
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þrátt fyrir að Daði haldi því fram að pólitísk afskipti af Landsvirkjun hafi verið engin sé ljóst að hann hafi fundað með stjórninni oftar en nokkru sinni fyrr.
„Forstjóri hennar, farsæll til 17 ára, lýsti því að hann hefði aldrei upplifað annað eins og gagnrýndi afskiptin harðlega í minnisblaði sínu, dagsettu 15. júní. Þetta er óumdeilt. Það er líka óumdeilt að það er mjög skýrt að ráðuneyti eða ráðherrann má ekki eiga eða viðhafa pólitísk afskipti af viðkomandi stjórn. Það bara má ekki. Það má ekki eiga samtöl um einstök mál til að mynda.“
Hildur segir það ekki standast skoðun að fundir Daða með stjórninni án Harðar hafi einungis snúist um stjórnarhætti.
„Skyldi hann kjósa að halda því fram að í öll þessi skipti, þegar liggur fyrir fundargerð þar sem rætt var Landsnet, skuldabréf og arður, hafi eingöngu verið rætt um almenna stjórnarhætti. Heldur ráðherrann að við séum einhverjir bjánar? Heldur fjármálaráðherra að þjóðin í landinu sjái ekki í gegnum svona?“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗