Opna nýja rannsóknarstofu fyrir malbik og bindiefni

Sigurrós segir að nýja aðstaðan gefi fyrirtækinu möguleika á að bæta við tækjabúnaði og þróa starfsemina enn frekar á næstu árum. Ljósmynd/Aðsend

Colas Ísland hefur tekið í notkun nýja 135 fermetra rannsóknarstofu í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Gullhellu. Þar verður unnið að gæðaprófunum, rannsóknum og þróun á malbiki, bindiefnum og steinefnum.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að rannsóknarstofan sé talin sú fullkomnasta sinnar tegundar hér á landi og að opnun hennar marki tímamót í íslenskri vega- og mannvirkjagerð.

Íslenskt veðurfar og umferðarálag reyna mikið á slitlag vega. Með reglubundnum gæðaprófunum á hráefnum og lokaafurðum sé unnt að tryggja gæði malbiks og stuðla að aukinni endingu vega og minni viðhaldsþörf, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Vilja minnka kolefnisspor malbiksframleiðslu

„Rannsóknarstofan gegnir lykilhlutverki í þeim rannsóknar- og þróunarverkefnum sem miða að því að minnka kolefnisspor malbiksframleiðslu, meðal annars með þróun nýrra bindiefna, aukinni endurnýtingu malbiks og vistvænni aðferðum við vegagerð,“ er haft eftir Sigurrós Arnardóttur, sem stýrir rannsóknarstofunni.

Henni er skipt í tvö sérhönnuð rými. Annað þeirra er ætlað stöðluðum prófunum á malbiki og steinefnum en hitt er nýtt til hefðbundinna og háþróaðra prófana á hreinu biki, þjálbiki og bikþeytu.

Aðstaðan er búin sérhæfðum tækjum til að mæla ýmsa eiginleika malbiks og hráefna sem notuð eru við framleiðslu þess.

Þar er meðal annars að finna búnað til að útbúa staðlaða malbikskjarna og mæla holrými, sig og festu malbiks. Þá eru á rannsóknarstofunni tveir bikbrennsluofnar sem notaðir eru til að mæla bindiefnismagn í malbiki.

Einnig er þar búnaður til sigtunar og mælinga á rúmþyngd steinefna, seigjumælar fyrir bik og þjálbik og tæki til að mæla stungudýpt og mýkingarmark biks. Þá er hægt að mæla bindiefnismagn, brothraða og seigju í bikþeytu.

Svigrúm til frekari uppbyggingar

Sigurrós segir að nýja aðstaðan gefi fyrirtækinu möguleika á að bæta við tækjabúnaði og þróa starfsemina enn frekar á næstu árum.

Fjárfestingin endurspegli metnað fyrirtækisins í gæða- og þróunarmálum og að henni sé ætlað að stuðla að uppbyggingu öruggari, hagkvæmari og sjálfbærari samgöngumannvirkja.

„Aðstaðan gerir Colas kleift að bæta við frekari tækjabúnaði á komandi árum, halda áfram frekari þróun og efla starfsemina enn frekar eftir því sem tækninni fleygir fram.“

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅