Ríkissjóður kaupir hesthúsið

Innlent | mbl | 4.11.2026 | 19:19 | Uppfært 5.11.2026 13:27

Hólar í Hjaltadal.

Hólar í Hjaltadal. mbl.is

Ríkissjóður Íslands hefur gengið frá kaupum á hesthúsinu og reiðhöllinni Brúnastöðum á Hólum í Hjaltadal.

Þetta kemur fram í tilkynningu á síðu Háskóla Íslands en þar segir að kaupin marki stóran og ánægjulegan áfanga fyrir hestafræðideild Háskóla Íslands á Hólum, nemendur hennar og framtíð hestafræðináms á Hólum.

„Brúnastaðir hafa frá því húsið var byggt verið í eigu einkaaðila og gegnt mikilvægu hlutverki í námi hestafræðinema. Þar hafa nemendur haft aðstöðu fyrir hross sín samhliða námi og nýtt aðstöðuna í tengslum við verklega kennslu og þjálfun,“ segir í tilkynningunni.

„Með kaupunum eignast skólinn húsnæði sem er órjúfanlegur hluti af námsumhverfinu og fær aukið svigrúm til að þróa aðstöðuna til framtíðar. Yfirfærsla Brúnastaða átti sér stað um sl. mánaðamót.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅