„Áfall fyrir alla“

José Mourinho.

José Mourinho. AFP/JORGE GUERRERO

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri spænska stórliðsins Real Madrid, segir andlát spænska knattspyrnumannsins Jesús de Miguel eftir árekstur í leik á mánudag mikið áfall.

Miguel fór í hjartastopp eftir harkalegt samstuð við Jesús Owono, markvörð Andorra, en þeim lenti saman undir lok leiksins. Hann lést síðan á sjúkrahúsi aðfaranótt þriðjudags.

Mourinho sendi fjölskyldu og vinum leikmannsins samúðarkveðjur en sagðist jafnframt finna til með markverðinum Jesús Owono, sem lenti í árekstrinum en hann ræddi málið á blaðamannafundi fyrir leik Real Madrid gegn AEK Aþenu í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag.

„Þetta er erfitt og sorglegt. Við sendum fjölskyldu og vinum hins látna allar okkar samúðarkveðjur. Ég get líka ímyndað mér að þetta sé afar erfið staða fyrir hinn leikmanninn sem kom við sögu,“ sagði Mourinho, samkvæmt AFP.

Owono fékk rautt spjald og var á leið af velli þegar hann heyrði leikmenn kalla á hjálp.

„Þetta er mikið áfall fyrir alla. Reynið að ímynda ykkur hvernig þetta er í fótboltaheiminum fyrir okkur sem erum á vellinum og keppum á hverjum degi,“ sagði Mourinho.

Mínútuþögn verður haldin fyrir leiki í evrópukeppnum félagsliða í vikunni til minningar um de Miguel.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅