Hettuklæddur á fundi með páfanum
Bandaríska tónlistargoðsögnin Bob Dylan heimsótti Leó páfa í Vatíkaninu í dag. Dylan, sem er 85 ára gamall, mætti til fundarins í svartri hettupeysu.
Fundurinn var stuttur og einkenndist af kveðjum og léttum samræðum að því er fram kemur á fréttavef Vatíkansins.
Páfi færði Dylan rósakrans að gjöf en tónlistarmaðurinn gaf páfa sjálfsævisögu sína.
Dylan, sem heitir fullu nafni Robert Allen Zimmerman, er nú staddur á Ítalíu þar sem hann er á tónleikaferðalagi.
Vitnaði í texta Dylans
Leó páfi, sem er 71 árs og fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að gegna embættinu, vitnaði í lagatexta eftir Dylan í formála bókar um afvopnun sem kom út fyrr á þessu ári.
Páfi hefur tekið einarða afstöðu gegn stríðsrekstri og lent í deilum við Donald Trump Bandaríkjaforseta í kjölfar gagnrýni sinnar á átökin í Mið-Austurlöndum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Dylan hittir páfa. Árið 1997 söng hann á bænasamkomu ungs fólks í Bologna á Ítalíu, þar sem Jóhannes Páll páfi II var viðstaddur.
Dylan hefur verið einn áhrifamesti tónlistarmaður samtímans um áratugaskeið. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2016.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

