Grunsamlegur ferðamaður sýndi Instagram-síðu sína og sagðist vera frægur þegar lögreglan stöðvaði hann í Leifsstöð

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 4. nóvember 2026 19:30

Leifsstöð. Ljósmynd/Eyþór

Albanskur maður taldi sig eiga rétt til bóta úr ríkissjóði eftir að lögreglan hafði afskipti af honum á Keflavíkurflugvelli. Því var dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur þó ekki sammála.

Atvik máls áttu sér stað í desember árið 2023. Morguninn 12. desember kom Albaninn, sem ekki á lögheimili hér á landi, til Íslands með flugi frá Ítalíu. Lögregla við eftirlit í flugstöðinni hafði þá afskipti af honum en hann mun hafa verið að ferðast með nafngreindum manni sem á sér brotaferil á Íslandi. Þegar lögreglan krafði Albanann svara um tilgang ferðarinnar gat hann ekki gefið fullnægjandi svör enda talaði hann ekki ensku. Eftir að túlkur var kallaður til sagðist Albaninn hingað kominn til að skoða íslenska náttúru. Hann væri með bókaða gistingu á gistiheimili og ætti flugmiða heim þann 16. desember.

Má ráða af dómi málsins að lögreglu hafi ekki þótt svarið fullnægjandi, en hann hafi ekki upplýst með nákvæmum hætti hvað hann ætlaði að gera hér á landi og hvert hann myndi fara. Þar sem tilgangurinn var óljós og þar sem hann ferðaðist með glæpamanni var ákveðið að vísa honum frá landi. Þegar Albaninn var spurður hvort hann skildi hvers vegna það væri verið að vísa honum frá landi gat hann ekki svarað spurningunni heldur sýndi Instagram-reikning sinn og sagðist vera frægur í heimalandi sínu.

Lögregla sagði Albananum þá að hann hefði til klukkan 17:00 til að verða sér úti um farmiða heim. Á meðan þurfti hann að halda sig á tilgreindu svæði flugstöðvarinnar sem er ætlað farþegum utan Schengen-svæðisins. Lögmaður Albanans krafðist endurupptöku og var þá ákvörðunin um frávísun dregin til baka og Albaninn fékk að koma inn í landið klukkan 10:09 þann 13. desember.

Albaninn höfðaði mál gegn ríkinu og krafðist þess að réttur hans til skaðabóta vegna afskipta lögreglu yrði viðurkenndur. Með því að meina honum að koma inn í landið og gera honum að halda sig inni á flugstöðinni í tæpan sólarhring hefði hann í raun verið sviptur frelsi með ólögmætum hætti. Líkja mætti þessari ráðstöfun við handtöku eða farbann. Eins byggði hann á því að afskipti lögreglu hefðu verið ólögmæt frá upphafi sem mætti sjá af því að ákvörðunin um frávísun var afturkölluð án þess að ný gögn hefðu verið lögð fram. Fyrir vikið hefði hann orðið fyrir miska og fjárhagslegu tjóni, þar með talið vegna gistingar sem hann gat ekki nýtt.

Dómarinn í málinu féllst ekki á það að afskiptin hefðu verið ígildi farbanns eða handtöku. Albananum hafi verið meinað að koma inn í landið en honum var þó frjálst að snúa heim. Afskiptin tengdust ekki sakamálarannsókn og því væri ekki hægt að byggja bótarétt á ákvörðun sakamálalaga um bætur vegna þvingunaraðgerða.

Tók dómari þó undir að frávísunin hefði ekki verið í samræmi við lög. Svörin sem lögreglu þóttu fyrst ófullnægjandi hefðu verið metin fullnægjandi við endurtöku án þess að nokkru hefði þar verið við bætt. Það þýddi þó ekki sjálfkrafa að ríkið hefði bakað sér bótaskyldu.

Ríkið var því sýknað í málinu, en dómurinn var kveðinn upp 2. nóvember.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅