Slavia Prag – Arsenal kl. 20, bein lýsing

Viktor Gyokeres fagnar marki sínu á 38. mínútu.

Viktor Gyokeres fagnar marki sínu á 38. mínútu. AFP/Michal Cizek

Arsenal vann 2:1-útisigur á Slavia Prague í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í Tékklandi í kvöld. 

Arsenal er í þriðja sæti með 10 stig en Slavia Prague er í þriðja neðsta sæti með aðeins eitt stig.

Gestirnir voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og Noni Madueke kom þeim yfir strax á níundu mínútu. Viktor Gyökeres þræddi boltann innfyrir vörn heimamanna þar sem Madueke komst á auðan sjó og afgreiddi boltann milli fóta Nazar Domchak í markinu.

Gyökeres komst svo sjálfur á blað þegar hann skoraði laglegt mark sjö mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Hann átti þá skemmtilegt þríhyrningaspil við Mikel Merino áður en hann afgreiddi knöttinn í stöng og inn.

Heimamenn komu mun betur stemmdir út í seinni hálfleikinn og komust í ágætis færi á köflum. Arsenal-liðið slakaði hins vegar fullmikið á klónni og reyndi að eyða sem minnstri orku í leikinn.

David Raya átti stórkostlega markvörslu þegar hann varði skalla frá Oskar Kubiak á 83. mínútu og svo virtist sem Arsenal ætlaði að takast að halda markinu hreinu.

Wiktor Nowak kom boltanum í netið á 90. mínútu og hélt vonum heimamanna á lífi en Arsenal náði að lokum að sigla sigrinum heim.

Noni Madueke skoraði fyrsta mark leiksins.

Noni Madueke skoraði fyrsta mark leiksins. AFP/Michal Cizek

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅