Öruggt hjá Degi og lærisveinum
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska karlalandsliðinu í handbolta hófu undankeppni EM 2028 á sannfærandi hátt í dag með 18 marka sigri á Litháen, 46:28.
Króatar höfðu tögl og haldir frá upphafi og leiddu allan leikinn. Forystan jókst jafnt og þétt og varð að lokum 18 mörk.
Ivan Martinović var markahæstur í liði Króatíu með tíu mörk.
Króatar eru því komnir vel af stað í undankeppninni en auk Litháens eru Finnland og Holland í riðlinum. Næsti leikur liðsins er gegn Finnlandi á útivelli um næstu helgi.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗