Dvaldi tæpan sólarhring í Leifsstöð

Manninum var gert að halda sig á afmörkuðu svæði innan flugstöðvarinnar og verða sér úti um flugmiða frá landinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu albansks ríkisborgara um viðurkenningu á rétti til skaðabóta vegna ákvörðunar um frávísun frá landinu og dvalar í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli í tæplega sólarhring.

Dómurinn taldi ákvörðun lögreglu um frávísun mannsins ekki hafa verið í samræmi við lög. Hins vegar hefði ekki verið sýnt fram á saknæma háttsemi lögreglu sem leiddi til bótaskyldu. Þá var ekki fallist á að maðurinn hefði verið sviptur frelsi að ósekju í skilningi bótaákvæðis stjórnarskrárinnar.

Dómurinn féll 2. nóvember. Hvor aðili ber sinn málskostnað.

Taldi tilgang dvalarinnar óljósan

Maðurinn kom með flugi frá Ítalíu að morgni 12. desember 2023. Lögregla hafði afskipti af honum í flugstöðinni og taldi hann ekki geta gert fullnægjandi grein fyrir tilgangi dvalar sinnar hér á landi.

Samkvæmt lögregluskýrslu sagðist maðurinn, með aðstoð túlks, ætla að skoða íslenska náttúru. Hann væri með bókaða gistingu og ætti flugmiða heim fjórum dögum síðar.

Lögregla taldi hann þó ekki geta gert nægilega skýra grein fyrir því hvað hann hygðist gera hér á landi eða hvert hann ætlaði að fara. Við ákvörðun um frávísun var einnig litið til þess að samferðamaður hans ætti að baki brotaferil á Íslandi.

Manninum var gert að halda sig á afmörkuðu svæði innan flugstöðvarinnar og verða sér úti um flugmiða frá landinu.

Lögmaður hans óskaði eftir endurupptöku málsins síðdegis sama dag. Lögregla féllst á beiðnina og afturkallaði frávísunina morguninn eftir. Manninum var þá heimiluð för inn í landið.

Ekki fallist á að um ígildi farbanns væri að ræða

Maðurinn taldi sig hafa verið sviptan frelsi að ósekju og byggði bótakröfu sína meðal annars á ákvæðum laga um meðferð sakamála og stjórnarskrárinnar. Þá vísaði hann til skaðabótalaga og almennra reglna skaðabótaréttar.

Dómurinn taldi gögn málsins ekki sýna að maðurinn hefði verið handtekinn. Þótt honum hefði verið gert að dveljast á tilteknu svæði flugstöðvarinnar hefði honum verið heimilt að snúa aftur til heimalands síns. Ekki væri grundvöllur fyrir þeirri staðhæfingu hans að aðgerðirnar hefðu verið ígildi farbanns, enda hefði lögregla þvert á móti lagt fyrir hann að verða sér úti um flugmiða frá landinu.

Afskipti lögreglu hefðu ekki tengst rannsókn sakamáls og maðurinn ekki haft stöðu sakbornings. Bótaákvæði laga um meðferð sakamála ætti því ekki við og ekki væru heldur rök til að beita því með lögjöfnun.

Sama svör metin með öðrum hætti

Við mat á frávísuninni benti dómurinn á að engin ný gögn eða skýringar virtust hafa komið fram áður en lögregla afturkallaði ákvörðunina. Lögreglustjóri hefði því lagt annan skilning en áður í svör mannsins og metið þau fullnægjandi.

Af því yrði ráðið að upphaflega ákvörðunin hefði byggst á ófullnægjandi mati á svörunum og ekki verið í samræmi við lög. Maðurinn hefði hins vegar ekki fært haldbær rök fyrir fullyrðingum sínum um brot lögreglu á ýmsum reglum stjórnsýsluréttar.

Dómurinn taldi ekki sýnt fram á að skilyrði um saknæmi væru uppfyllt. Meðal annars væri nokkuð matskennt hvort útlendingur hefði leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gæfi upp fyrir dvöl sinni. Þá hefði lögreglustjóri brugðist skjótt við beiðni lögmannsins, endurupptekið málið og afturkallað frávísunina.

Því væru hvorki skilyrði til að viðurkenna bótaskyldu samkvæmt almennu sakarreglunni né rétt til miskabóta samkvæmt skaðabótalögum. Ríkið var því sýknað.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅