Vildu segja öllum upp og tæma Fjarðarkaup
Fjárfestingarfélag sem sýndi áhuga á að kaupa Fjarðarkaup í Hafnarfirði vildi fá húsnæði verslunarinnar afhent tómt og gera ráð fyrir því að öllum starfsmönnum yrði sagt upp.
Þetta kemur fram í viðtali við Gísla Sigurbergsson, framkvæmdastjóra og einn eigenda Fjarðarkaupa, í Dagmálum.
Gísli segir að margir aðilar hafi í gegnum tíðina sýnt áhuga á að kaupa fjölskyldufyrirtækið, sem hefur verið rekið í Hafnarfirði í 53 ár. Þegar systkinin fjögur ákváðu að hefja formlegt söluferli hafi meðal annars komið fram áhugi frá fjárfestingarfélagi sem vildi ekki halda verslunarrekstrinum áfram.
„Þeir vildu bara fá húsið afhent tómt,“ segir Gísli.
„Bara við áttum að segja öllum upp. Tæma, vera með útsölu.“
Gísli segir að systkinin hafi alls ekki verið spennt fyrir þeirri hugmynd og því hafi ekki orðið af þeim viðskiptum.
Samkaup kaupa reksturinn
Eins og greint hefur verið frá hafa Samkaup, dótturfélag Dranga, nú samið um kaup á verslunarrekstri Fjarðarkaupa. Fasteignafélagið Kaldalón kaupir hins vegar fasteignina sem hýsir verslunina.
Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Samkaup hyggjast halda versluninni áfram og efla þjónustuna, meðal annars með apóteki Lyfjavals, bakaríi Brauðs & Co. og verslun Kjötkompanís.
Gísli segir þó í Dagmálum að seljendurnir hafi ekki sett nein sérstök skilyrði um að verslunarrekstur verði áfram í húsnæðinu.
„Þeir mega bara gera hvað sem þeir vilja. En auðvitað viljum við að þeir haldi merki Fjarðarkaupa uppi,“ segir hann og tekur fram að það sé ekki lengur á valdi fjölskyldunnar að ákveða framtíð verslunarinnar.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗