Hettuklæddur á fundi með páfanum

Bob Dylan og Leó páfi í dag.

Bob Dylan og Leó páfi í dag. AFP/Vatíkanið

Bandaríska tónlistargoðsögnin Bob Dylan heimsótti Leó páfa í Vatíkaninu í dag. Dylan, sem er 85 ára gamall, mætti til fundarins í svartri hettupeysu.

Fundurinn var stuttur og einkenndist af kveðjum og léttum samræðum að því er fram kemur á fréttavef Vatíkansins.

Páfi færði Dylan rósakrans að gjöf en tónlistarmaðurinn gaf páfa sjálfsævisögu sína.

Dylan, sem heitir fullu nafni Robert Allen Zimmerman, er nú staddur á Ítalíu þar sem hann er á tónleikaferðalagi.

Páfi færði Dylan rósakrans að gjöf en tónlistarmaðurinn gaf páfa sjálfsævisögu sína. AFP/Vatíkanið

Vitnaði í texta Dylans

Leó páfi, sem er 71 árs og fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að gegna embættinu, vitnaði í lagatexta eftir Dylan í formála bókar um afvopnun sem kom út fyrr á þessu ári.

Páfi hefur tekið einarða afstöðu gegn stríðsrekstri og lent í deilum við Donald Trump Bandaríkjaforseta í kjölfar gagnrýni sinnar á átökin í Mið-Austurlöndum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Dylan hittir páfa. Árið 1997 söng hann á bænasamkomu ungs fólks í Bologna á Ítalíu, þar sem Jóhannes Páll páfi II var viðstaddur.

Dylan hefur verið einn áhrifamesti tónlistarmaður samtímans um áratugaskeið. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2016.

Leó páfi er ekki fyrsti páfinn sem Dylan hittir, en hann hitti Jóhannes Pál páfa árið 1997. AFP/Vatíkanið

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅