„Ég get verið feiminn stundum við að koma fram“
Þrátt fyrir að virðast sjálfsöruggur á sviði viðurkennir hinn ungi Maron Birnir, einn vinsælasti tónlistarmaður landsins, að hafa þurft að hafa töluvert fyrir því að ná tökum á sviðsframkomunni. En á undanförnum árum hefur hann stigið á svið fyrir þúsundir tónleikagesta, meðal annars á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og í Laugardalshöll.
„Ég þurfti að æfa mig mjög mikið. Út af því að ég get verið feiminn stundum að koma fram,“ segir Maron.
Hann segir sviðsframkomuna ekki endilega hafa verið eitthvað sem hann bjó yfir og að fyrst um sinn hafi hann átt erfitt með að ávarpa tónleikagesti á milli laga.
„Mér fannst alltaf óþægilegt að tala við „crowdið“. Segja eitthvað svona: „Já, hvernig hafið þið það?“ eða eitthvað,“ lýsir hann en þó segir hann þetta hafa breyst og orðið auðveldara með hverju skiptinu og eftir því sem tónleikunum fjölgaði.
Tilbúinn að trylla lýðinn
Eins og fleiri tónlistarmenn og skemmtikraftar hafa haft orð á í gegnum tíðina segist Maron Birnir mun afslappaðri þegar hann kemur fram fyrir stóran hóp fólks fremur en fámennan, en oft komi lítil gigg við sögu vegna smæðar samfélagsins.
„Mér finnst erfiðast að koma fram fyrir framan lítinn fjölda af fólki heldur en risastóran, þá er ég bara peppaður og tilbúinn að trylla lýðinn,“ segir hann og segist finna frekar fyrir óöryggi þegar fáir eru í salnum.
„Þá veit ég ekki hvað ég á að segja á milli og hvort einhver er að fara svara.“
Og ertu þá alltaf með einhverjar æfðar línur til að segja?
„Já, ég reyni bara að segja „hvernig er stemningin hérna“ og eitthvað,“ segir hann og hefur reyndar fundið ágætis lausn ef upp koma sérlega óþægilegar aðstæður.
„Ef þetta er eitthvað hræðilegt þá bara læt ég DJ-inn bara fara beint í næsta lag og ég syng bara allan tímann sko.“
Maron Birnir er gestur Ásthildar Hannesdóttur í Dagmálum þar sem hann ræðir meðal annars um tónlistarferilinn og nýútkomna breiðskífu sína, Í fyrsta sinn.
Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast viðtalið við Maron Birni í heild sinni:
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗