Bruno segir margar lygasögur hafa verið á flugi undanfarið

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, lét tilfinningarnar ráða för eftir ótrúlegan 3-2 sigur liðsins gegn Roma í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöldið.

United lenti 2-0 undir á Old Trafford en Fernandes minnkaði muninn úr vítaspyrnu áður en Matheus Cunha tryggði sigurinn með tveimur mörkum undir lokin.

Fernandes var valinn maður leiksins og var afar tilfinningaríkur í viðtali við Amazon Prime eftir leik.

„Við þurfum ekki að bjarga starfi neins. Félagið þurfti á þessum sigri að halda. Leikmennirnir þurftu á honum að halda,“ sagði Fernandes.

Hann ræddi einnig sögusagnir um ósætti sitt við Michael Carrick, knattspyrnustjóra United.

„Það hafa verið sagðar margar lygar um það sem hefur gerst hjá félaginu, meðal annars milli mín og stjórans.“

Fernandes var settur á bekkinn gegn Bournemouth en segir ákvörðunina hafa verið sanngjarna.

„Stjórinn tók þá ákvörðun vegna þess að ég var ekki að standa mig. Það var sanngjarnt.“

Hann lauk síðan viðtalinu með kraftmiklum orðum.

„Það breytir ekki trú minni á stjórann, starfsliðið eða leikmennina. Og það breytir ekki markmiði mínu um að vinna hvern einasta fokking leik.“

Gabby Logan, þáttastjórnandi Amazon Prime, þurfti í kjölfarið að biðjast afsökunar á orðbragði Portúgalans.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅