Andri Snær kallar eftir opinberri afsökunarbeiðni og birtir eigið kort: „Ég gaf þeim einn apaheila“
Rithöfundurinn Andri Snær Magnason segir að eina framlag sem Viðskiptaráð hafi til umræðunnar um virkjanakosti sé upplýsingaóreiða, segir hann að ummæli sín um apaheila í síðustu viku hafi verið viðbragð við óvönduðum vinnubrögðum. Kallar hann eftir leiðréttingu og opinberri afsökunarbeiðni.
Líkt og fjallað var um í síðustu viku fór Andri Snær hörðum orðum um vinnubrögð Viðskiptaráðs í tengslum við nýja skýrslu um raforkukosti í færslum á X og sagði meðal annars; „Viðskiptaráð eru svo miklir apaheilar að maður gæti sprungið“. Þessi setning var meðal annars valin ummæli vikunnar í Viðskiptablaðinu í dag. Er þar talað um hans „annáluðu hófsemd“ og flokkuð á háðslegan hátt undir „málefnalega gagnrýni“.
Sjá einnig: „Viðskiptaráð eru svo miklir apaheilar að maður gæti sprungið“
@vidskiptarad eru svo miklir apaheilar að maður gæti sprungið. Aðeins verkefni yfir 600MW fái ,,lýðræðislega umfjöllun". Dettifossvirkjun, lokaáfangi LSD - að demba Jökulsá á Fjöllum á Austurland er bara 570MW. Fyrirtækin á bak við ykkur eiga eiga að skammast sín. https://t.co/swNmlEDW7D
— Andri Snær Magnason (@AndriMagnason) October 29, 2026
Ásamt skýrslunni birti Viðskiptaráð kort af öllum virkjanakostnum, nú hefur Andri Snær birt sitt eigið kort sem hann segir til mótvægis við kort Viðskiptaráðs.
Smelltu hér til að skoða kort Viðskiptaráðs
Smelltu hér til að skoða kort Andra Snæs
Í grein á Vísi í dag útskýrir Andri Snær ítarlega hvað hann á við og nefnir tilbúið dæmi ef Bændasamtökin myndu senda frá sér tölfræði um kjöt og teldi með kjöt af hundum, köttum og mannfólki. „Einhverjir hefðu sagt að þetta væru áhugaverðar upplýsingar en kannski ekki gagnlegar sem umræðugrundvöllur,“ segir hann.
„Þannig varð mér við þegar Viðskiptaráð birti kort af Íslandi þar sem nánast hver einasta náttúruperla landsins er mæld og vegin sem virkjunarkostur. Á kortinu eru staðir sem eru jafn heilagir íslenskri þjóð og handritin og tungumálið. Þar má sjá friðuð svæði, Öskju, Dettifoss og Torfajökulssvæðið. Gott og vel, áhugaverð tölfræði - en af hverju?“
Verið sé að tví-, þrí- og jafnvel fjórtelja virkjanakosti ásamt ákalli um að sett verði markmið um að tvöfalda orkuframleiðslu á næstu fjórtán árum. „En Viðskiptaráð stígur yfir ,,mörk raunveruleikans" í greiningu sinni vegna þess að á korti þeirra má lesa að nýtanleg orka ,,virkjunarkosta" á Íslandi séu 85,2 teravattstundir. Það er mun hærri tala en ég hef áður séð. Ráðið gerir þau reginmistök að stærstu virkjunarkostir Íslands eru tvítaldir, stundum þrítaldir eins og Hólmsá en Skaftá slær öll met því hún er fjórtalin. Það er ekki hægt að virkja sömu fallhæð oftar en einu sinni,“ segir hann.
„Dettifossvirkjun gegnum Arnardal og Helmingsvirkjun verða til dæmis ekki gerðar samtímis, þar má ekki leggja saman fjóra plús tvo. Auk þess ætlar enginn að virkja Dettifoss. Er það nokkuð?“
Viðskiptaráð segir töluna standast
Kvennablaðið kallaði eftir svörum frá Viðskiptaráði en þar segir að talan upp á 82,5 teravattstundir stemmi. „Samtalan á kortinu er summa allra virkjunarkosta sem hafa komið til mats í rammaáætlun. Þegar kostir sem útiloka hver annan samkvæmt gögnum rammaáætlunar eru dregnir frá, til dæmis Helmingsvirkjun, standa eftir 82,5 teravattstundir. Talan í úttektinni, yfir 80 teravattstundir, stenst því. Það er rúmlega fjórföld raforkuframleiðsla Íslands í dag.“
Það eigi að vera í höndum Alþingis að setja leikreglurnar, ekki að velja nákvæmlega hvað eigi að virkja. Þá er því hafnað að Viðskiptaráð vilji nýta alla kostina sem séu á kortinu. „Viðskiptaráð leggur hvorki til að ráðist verði í tilteknar virkjanir né að allir kortlagðir kostir verði nýttir. Kortið sýnir hvað hefur komið til mats, ekki hvað eigi að virkja. Tvöföldun raforkuframleiðslunnar kallar á innan við fjórðung þeirra kosta sem hafa verið kortlagðir. Hvaða kostir verða að veruleika á að ráðast í almennu leyfisferli, með umhverfismati og skipulagi, en ekki með pólitískri handstýringu.“
Andri Snær segir að talningin á orkugetunni sé röng, það skeikar um tvær Kárahnúkavirkjanir, birtir hann meðfylgjandi töflu máli sínu til stuðnings:
„Ofmatið í skekkjunni jafngildir árlegri raforkunotkun Eistlands en þar búa 1,4 milljónir manna. Þar að auki er ekkert mál að kokka upp hvaða tölu sem er um fræðilega nýtanlega orku. Með sömu nálgun gæti hvaða barn sem er teiknað upp 103.000 vindmyllur á Íslandi, eina á hvern ferkílómeter lands, fundið þannig uppsett afl upp á milljón MW og búið til fantasíu um hundraðfalda orkuframleiðslu,“ segir hann.
Fjórtán ára sturluð manía
Þá dregur hann í efa fýsileika þess að tvöfalda raforkuframleiðsluna fyrir árið 2040.
„Ef tvöfalda á orkuframleiðslu á Íslandi fyrir árið 2040 þá jafngildir það að öllum orkuframkvæmdum síðustu 100 ára yrði þjappað í eina sturlaða 14 ára maníu. Þá þyrfi að byggja eina Kárahnjúkavirkjun á rúmlega þriggja ára fresti næstu 14 ár.“
Ef rammaáætlun yrði svo afnumin þá væri lukkuriddurum sigað á alla hreppstjóra landsins. Þá útskýrir hann ummælin um apaheilana.
„Þá má spyrja sig um orðfæri í almennum samskiptum. Ummæli sem ég lét falla um skýrslu Viðskiptaráðs á X, fyrrum Twitter voru ekki út af öndverðum skoðunum sem ég leitast við að virða. Ummælin voru viðbragð við óvönduðum vinnubrögðum, fjórtalningu á orkukostum með skekkju á stærð við milljónaþjóð og makalausa tillögu þeirra um að aðeins virkjunarkostir yfir 600 MW eigi að fara fyrir Alþingi þegar ENGINN slíkur kostur er á landinu,“ segir hann. Eina sem standi eftir sé upplýsingaóreiða.
„Ummælin voru viðbrögð við sturluðu ákalli um tvöfaldaða framleiðslu á sama tíma og heilög svæði, löngu friðaðir kostir voru mældir upp á töfluna. Við lestur á orkukorti Viðskiptaráðs mætti halda að Fjallkonan væri loksins dauð en vandinn er sá að þeir bjóða til miklu stærri kjötveislu en mögulegt er. Þessi heild er öll fullkomlega galin og sorglegt að sjá það bakkað upp af öflugustu fyrirtækjum Íslands. Prófdómari hefði fellt skýrsluhöfunda, ritdómur hefði gefið henni hauskúpu. Ég gaf þeim einn apaheila. Ég get tekið heilann aftur en hauskúpan fær að standa.“
Kallar hann eftir því að Viðskiptaráð leiðrétti skýrsluna og biðjist opinberlega afsökunar: „Ég hvet forstjóra Ölgerðarinnar, Landsbankans, Icelandair og alla þá aðila sem fjármagna Viðskiptaráð, að kanna hvað er á seyði þarna innanhúss. Hver sá sem skilur, virkjunarkosti, náttúru eða fjármál getur séð að Viðskiptaráð hefur stimplað sig út úr umræðunni um framtíð orkumála á Íslandi.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗