Kennir Íransstríðinu um ósigurinn

Donald Trum og JD Vance.

Donald Trum og JD Vance. AFP/Alex Wroblewski

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir Íransstríðið helstu ástæðu þess að repúblikanar biðu ósigur í þingkosningunum í gær. Hann segir stríðið og efnahagsleg áhrif þess hafa orðið til þess að kjósendur sneru baki við flokknum.

Vance fjallaði um kosningaósigurinn í langri færslu á samfélagsmiðlinum X á miðvikudag, þar sem hann virtist jafnframt leitast við að fjarlægja sig stríðinu í aðdraganda mögulegs forsetaframboðs árið 2028.

„Ástæðan fyrir því að við töpuðum er stríðið. Forsetinn sagði það sjálfur í gærkvöldi,“ skrifaði Vance og vísaði þar að því er virðist til ummæla Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði Íransstríðið vera „hluti af því“ en taldi átökin engu að síður réttlætanleg.

Segir alla vita hvers vegna flokkurinn tapaði

„Ef þið viljið halda því fram að það hafi verið þess virði, að það hafi verið þess virði að missa öldungadeildina næstu sex árin, gerið það þá. Haldið því fram að það hafi verið þess virði að greiða það. Hvort sem maður er sammála eða ósammála er það að minnsta kosti heiðarlegt,“ skrifaði Vance.

„En allir vita hvers vegna við töpuðum. Og öll heiðarleg umræða um framhaldið verður að hefjast þar.“

Stórsigur demókrata í þingkosningunum hefur vakið spurningar um pólitíska framtíð Vance, sem hingað til hefur verið talinn líklegasti forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins árið 2028. Hann hefur þó ekki enn lýst formlega yfir framboði.

Vance hefur lengi verið harður gagnrýnandi hernaðaríhlutunar Bandaríkjanna erlendis og er sagður hafa haft efasemdir um stríðið gegn Íran, sem Bandaríkin og Ísrael hófu í lok febrúar.

Kjósendur sneru baki við flokknum

Vance viðurkenndi jafnframt að margir þeirra sem studdu hann og Trump í forsetakosningunum árið 2024 hefðu nú kosið Demókrata.

„Helsta vandamálið er að margir sem kusu Trump/Vance árið 2024 kusu Demókrata árið 2026,“ sagði hann.

Hann vísaði til niðurstaðna skoðanakönnunar sem bentu til þess að Íransstríðið og efnahagsmálin hefðu ráðið miklu um fylgistap Repúblikana. Þá hefðu kjósendur einnig viljað „breyta sambandi okkar við Ísrael“.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅