Landsréttur staðfestir frávísun máls gegn borginni

Landsréttur taldi kröfugerð samtakanna ekki uppfylla skilyrði laga um meðferð einkamála. Ljósmynd/Colourbox

Landsréttur hefur staðfest frávísun máls ÖBÍ réttindasamtaka gegn Reykjavíkurborg vegna fjármögnunar notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar, NPA. Samtökin kröfðust þess að viðurkennt yrði að borgin hefði brotið gegn lögum við samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026.

Landsréttur taldi kröfugerð samtakanna ekki uppfylla skilyrði laga um meðferð einkamála. Með úrskurðinum er því ekki tekin efnisleg afstaða til þess hvort borgin hafi brotið gegn skyldum sínum til að fjármagna þjónustuna.

Úrskurðurinn var kveðinn upp í gær. ÖBÍ var gert að greiða borginni 300 þúsund krónur í kærumálskostnað, en í héraði var málskostnaður látinn falla niður.

42 samþykktar umsóknir biðu afgreiðslu

Málið varðaði fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sem borgarstjórn samþykkti 2. desember 2025. ÖBÍ taldi borgina hafa brotið gegn lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir með því að gera ekki ráð fyrir fjármögnun samþykktra umsókna um NPA sem voru ófjármagnaðar þegar áætlunin var afgreidd.

Í svari borgarinnar við fyrirspurn ÖBÍ í október 2025 kom fram að 42 samþykktar umsóknir biðu þess að þjónusta hæfist. Þar af voru 29 nýjar umsóknir og 13 umsóknir um aukinn tímafjölda.

Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að í fjárhagsáætluninni hafi ekki verið gert ráð fyrir fjármögnun þessara umsókna. Borgin benti þó á að þremur nýjum NPA-samningum hefði verið úthlutað í maí 2026 eftir að velferðarsvið hefði hliðrað til verkefnum og þannig fjármagnað þá innan samþykkts fjárhagsramma.

Ágreiningur stæði eftir þótt fallist yrði á kröfuna

ÖBÍ byggði meðal annars á því að sveitarfélögum bæri að fjármagna þá þjónustu sem þeim væri skylt að veita. Viðurkenning á lögbroti borgarinnar hefði raunhæfa þýðingu fyrir þá sem biðu þjónustunnar og gæti jafnframt orðið grundvöllur bótakrafna þeirra.

Reykjavíkurborg krafðist frávísunar og taldi meðal annars óljóst hvaða réttaráhrif það hefði ef fallist yrði á kröfuna.

Landsréttur taldi að jafnvel þótt fallist yrði á kröfu ÖBÍ yrði ágreiningurinn um þau réttindi sem samtökin vísuðu til ekki leiddur til lykta. Eftir sem áður yrði deilt um inntak og afmörkun greiðsluskyldu borgarinnar.

Krafan, eins og hún var sett fram, færi gegn ákvæði laga um að dómstólar verði ekki krafðir álits um lögfræðileg efni nema að því leyti sem nauðsynlegt sé til úrlausnar um ákveðna kröfu í dómsmáli. Þá uppfyllti málatilbúnaður ÖBÍ ekki skilyrði laganna um ákveðna kröfugerð.

Landsréttur staðfesti því úrskurð héraðsdóms frá 23. september um frávísun málsins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅