Telur ákvörðun sína hafa haft mikið að segja um gærkvöldið - Fór í lukkubrjóstahaldarann

Klámstjarnan Skylar Skye, sem er mikill stuðningsmaður Manchester United, telur sig eiga þátt í ótrúlegum 3-2 sigri liðsins gegn Roma í Meistaradeild Evrópu.

Skye, sem er 25 ára, mætti á Old Trafford með sérstakan lukkugrip og birti myndband á samfélagsmiðlinum X.

„Ég er í lukkubrjóstahaldaranum mínum á Old Trafford í dag, þannig að ef United vinnur vitið þið hverjum á að þakka,“ sagði hún.

United lenti 2-0 undir en Bruno Fernandes minnkaði muninn úr vítaspyrnu áður en Matheus Cunha skoraði tvívegis og tryggði sigurinn.

Eftir leikinn birti Skye nýja færslu með skilaboðunum: „Verði ykkur að góðu!“

Stuðningsmenn United tóku gríninu vel og þökkuðu henni fyrir framlagið.

Skye hefur áður vakið athygli fyrir stuðning sinn við félagið á samfélagsmiðlum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅