Lokaði sig inni á baði og neitaði að fara
Innlent | mbl | 4.11.2026 | 18:10
Óskað var eftir aðstöð lögreglunnar í verslun í miðbæ Reykjavíkur í dag vegna ölvaðs einstaklings sem neitaði að yfirgefa verslun og lokaði sig inni á baðherbergi.
Lögregla brást við með því að mæta á vettvang en ekki liggur fyrir hvernig málinu lyktaði.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir mál sem áttu sér stað á tímabilinu frá klukkan 5 til 17 í dag.
Meðal annarra mála sem lögregla sinnti voru innbrot í bifreið, æstur aðili í strætisvagni og innbrot í húsnæði sem er verið að gera upp þar sem töluverðu var stolið af verkfærum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗