Skoraði fyrir þýska stórliðið í Evrópu

Bjarki Hrafn Garðarsson.

Bjarki Hrafn Garðarsson. Instagram/@bvb09nachwuchs

Bjarki Hrafn Garðarsson skoraði fyrir U19 ára lið Dortmund í jafntefli gegn Real Betis í Evrópukeppni unglingaliða í dag en loktatölur voru 2:2.

Bjarki skoraði síðara mark liðsins og kom því í 2:1 á 23. mínútu en spænska liðinu tókst að jafna í fyrri hálfleik og þar við sat.

Bjarki hefur verið sjóðheitur fyrir framan mark andstæðingana en hann hefur skorað 14 mörk í 12 leikjum fyrir unglingaliðið.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅