Enn gjaldþrota þrátt fyrir sýknudóm
Karl Wernersson, einn umsvifamesti fjárfestir landsins fyrir efnahagshrunið, hélt fund í dag fyrir fullum sal í Smárabíó þar sem hann fór yfir þau málaferli sem hann hefur staðið í síðustu nær 20 ár og þau áhrif sem málin hafa á hann enn í dag.
Karl segist hafa staðið fyrir fundinum í ljósi þess að 17 ár eru liðin frá því að sérstakur saksóknari hóf rannsókn á honum vegna meintra umboðssvika í tengslum við félag hans Milestone ehf.
Karl hlaut árið 2016 þriggja og hálfs árs fangelsisdóm í Hæstarétti vegna málsins og sat hann í fangelsi í kjölfarið. Karl fór í kjölfarið með málið til Mannréttindadómstóls Evrópu sem féllst á að taka málið til efnismeðferðar. Karl gerði í kjölfarið sátt við íslenska ríkið og fékk málið endurupptekið. Málinu var í kjölfarið vísað frá Hæstarétti og stendur sýknudómur hans úr héraðsdómi því óhaggaður.
„Algjört óréttlæti“
Karl var á grundvelli sakfellingar í Hæstarétti dæmdur í öðru dómsmáli til að greiða þrotabúi Milestone fúlgur fjár og var hann í kjölfarið úrskurðaður gjaldþrota, sem hann er enn.
„Sýknan mín stendur en á meðan dómurinn var í gildi þá var ég dæmdur til að borga háar skaðabætur til þrotabús Milestone. Og síðan þegar þetta ömurlega refsimál var leiðrétt þá fæ ég ekki skaðabótadóminn leiðréttan. Þannig að ég er í raun og veru saklaus með hreint sakavottorð en skulda fúlgur fjár af, vegna skaðabótadóms sem var felldur út af refsiverðri háttsemi,“ segir Karl í samtali við blaðamann að fundi loknum.
Málshöfðunarfrestir í skaðabótamálinu voru liðnir þegar málið var höfðað og var því eina leiðin til þess að Karl yrði gerður skaðabótaskyldur sú að hann yrði fundinn sekur um refsiverða háttsemi.
„Ég hef borið þetta undir mjög marga lögmenn og fengið menn til að skrifa álit og ég hef ekki hitt neinn lögmann sem sér eitthvert réttlæti í þessu. Þetta er algjört óréttlæti.“
Sátt í vinnslu
Steingrímur Wernersson, bróðir Karls og einn af fyrrverandi aðaleigendum Milestone, og Guðmundur Ólason, fyrrverandi forstjóri Milestone, hlutu fangelsisdóma vegna málsins í Hæstarétti en gerðu aldrei sátt við ríkið og fengu mál sín ekki endurupptekin. Af þeim sökum hefur ekki verið fallist á að skilyrði sé fyrir því að leiðrétta skaðabótaskyldu Karls.
Hefur ráðuneytið ekki viljað gera sátt við Guðmund og Steingrím?
„Eigum við ekki bara að segja að málið sé í vinnslu?“
Skiptastjórinn vill miskabæturnar
Karl hefur ekki fengið greiddar bætur fyrir það að hafa setið saklaus í fangelsi. Hann hefur þó fengið bréf þar sem ríkið viðurkennir bótaskyldu.
„Vegna þess að ég er undir gjaldþrotaskiptum þá hefur skiptastjóri minn heimtað að fá bæturnar vegna míns miska greiddar inn í búið og ríkið getur ekki tekið ákvörðun um hvert það ætlar að borga.“
Sætir nýrri ákæru fyrir skilasvik
Ertu sannfærður um að þín viðskipti í gegnum tíðina hafi staðist lög?
„Já, ég hef lagt mig fram við að gera mína samninga með færustu sérfræðingum. Þetta mál kom held ég fyrst og fremst til skoðunar vegna æsingsins sem var í kringum hrunið. Þetta kemur upphaflega frá skiptastjóra Milestone, hann og hans starfsmenn fengu að valsa óáreittir um gagnageymslu sérstaks saksóknara.“
Karl sætir nú ákæru fyrir skilasvik en hann er sakaður um að koma eignum undan eftir að hann var lýstur gjaldþrota. Aðalmeðferð hefur þó enn ekki farið fram í héraði. Karl vill þó ekkert tjá sig um gang málsins og mögulega niðurstöðu þess.
Varstu að reyna að koma eignum undan eftir gjaldþrotið?
„Nei, ég var ekki að koma eignum undan eftir gjaldþrotið. Ég sá fram á að ég yrði gjaldþrota og undirbjó sölu á Lyfjum og heilsu til sonar míns í janúar 2014, það er lengri saga að segja þannig ég held við þurfum að geyma það til betri tíma.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
