Fenerbahce – Liverpool, staðan er 0:0

N'Golo Kante í baráttu við Dominik Szoboszlai.

N'Golo Kante í baráttu við Dominik Szoboszlai. AFP/Ozan Kose

Fenerbahce vann fyrsta sigur sinn í Meistaradeild Evrópu í fótbolta þegar liðið lagði Liverpool að velli 3:2 í Tyrklandi í kvöld. Þetta var jafnframt fyrsta tap Liverpool í keppninni á leiktíðinni.

Liverpool er í fimmta sæti með 9 stig en Fenerbahce er í 20. sæti með fimm.

Gestirnir frá Liverpool voru sterkari aðilinn framan af leik og tóku forystuna eftir 25. mínútna leik þegar Trey Nyoni skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Dominik Szoboszlai átti fyrirgjöf sem var skölluð frá. Nyoni tók boltann á lofti í fyrsta og átti skot sem hafði viðkomu í varnarmanni og Ederson markverði áður en hann fór í netið. 

Englendingurinn Mason Greenwood jafnaði metin fyrir heimamenn með marki úr aukaspyrnu sem fór af Jeremy Jacquet í varnarveggnum og í netið. Alisson markvörður Liverpool var lagður af stað í gagnstætt horn og átti því ekki möguleika á að verja. 

Staðan var jöfn 1:1 í hálfleik.

Liverpool tók forystuna að nýju á 69. mínútu þegar varamaðurinn Alexander Isak skoraði aðeins þremur mínútum eftir að hafa komið inn á.

Annar varamaður lagði upp markið Hollendingurinn Cody Gakpo. Gakpo lyfti boltanum inn á markteig þar sem Svínn var mættur og skallaði inn af stuttu færi. 

Alexander Isak kom Liverpool yfir 2:1. AFP/Ozan Kose

Aftur tókst Fenerbahce að jafna skömmu eftir að hafa lent undir. Archie Brown skoraði þá af stuttu færi þegar boltinn barst til hans inn í markteig eftir klaufalegan skalla frá Gakpo sem reyndi að skalla frá marki. 

Sigurmark heimamanna kom svo á 79. mínútu þegar Vedat Muriqi var sterkari en varnarmenn Liverpool og skallaði fyrirgjöf Brown í netið. 

Vedat Muriqi skoraði sigurmark heimamanna.

Vedat Muriqi skoraði sigurmark heimamanna. AFP/Yasin Akgul

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅