Ráðherrarnir hurfu úr veislunni: Trump sagður hafa setið eftir „lamaður af reiði“
Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa verið æfur af reiði þegar ljóst varð að Repúblikanar hefðu beðið afhroð í þingkosningunum vestan hafs sem fram fóru í gær.
Demókratar tryggðu sér meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og veittu Repúblikönum þar með þungt pólitískt högg.
Á meðan ráðherrar og nánustu samstarfsmenn forsetans yfirgáfu kosningavöku í Hvíta húsinu hélt Trump sig í einkaíbúð sinni, þar sem hann fylgdist með ósigrinum verða að veruleika í beinni útsendingu.
Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun Daily Mail, þar sem dregin er upp mynd af miklu uppnámi innan Hvíta hússins þegar umfang kosningaósigursins varð ljóst.
„Það er mjög, mjög dimmt yfir Hvíta húsinu,“ sagði háttsettur embættismaður og lýsti afar þungu andrúmslofti.
Veislan leystist upp
Ráðherrar, ráðgjafar og stuðningsmenn Trumps höfðu safnast saman í Austursal Hvíta hússins til að fylgjast með kosningaúrslitunum. Boðið var upp á veitingar frá Cheesecake Factory og stórir skjáir sýndu nýjustu tölur.
Trump lét hins vegar aldrei sjá sig. Hann fylgdist með úrslitunum í einkaíbúð sinni ásamt Susie Wiles, starfsmannastjóra Hvíta hússins, og Natalie Harp, einum nánasta aðstoðarmanni sínum.
Eftir því sem umfang ósigursins varð ljósara tóku gestir að yfirgefa veisluna. Fyrst fóru háttsettir starfsmenn og síðan nokkrir ráðherrar. Marco Rubio utanríkisráðherra var á staðnum fyrr um kvöldið en var síðar hvergi sjáanlegur.
Þegar fjölmiðlar spáðu því skömmu fyrir klukkan 22 að austurstrandartíma að Demókratar myndu tryggja sér meirihluta í fulltrúadeildinni var salurinn orðinn að mestu auður. Nokkrir starfsmenn héldu á nálægan bar til að drekkja sorgum sínum og veitingarnar stóðu eftir ósnertar.
Sagður hafa þagnað af reiði
Samkvæmt heimildarmanni Daily Mail var Trump orðinn svo reiður um klukkan ellefu að hann sagði varla orð.
„Hann situr og horfir á Fox News, segir varla orð og er nánast lamaður af reiði,“ sagði heimildarmaður nákominn forsetanum.
Á samfélagsmiðlinum Truth Social var forsetinn þó öllu málglaðari. Þar beindi hann meðal annars spjótum sínum að Fox News og sakaði sjónvarpsstöðina um að bera ábyrgð á ósigrinum.
„Fox News ber ábyrgð á þessum ósigrum,“ skrifaði hann.
Trump gagnrýndi einnig Greg Abbott, ríkisstjóra Texas, þrátt fyrir að hafa aðeins nokkrum klukkustundum áður farið fögrum orðum um hann.
„Við hefðum unnið STÓRSIGUR!“ skrifaði forsetinn og benti á að nafn hans hefði ekki verið á kjörseðlinum.
Ráðherrar gætu þurft að taka pokann sinn
Samkvæmt Daily Mail eru háttsettir embættismenn þegar farnir að velta fyrir sér hverjir þurfi að axla ábyrgð á ósigrinum.
Þar eru Marco Rubio utanríkisráðherra og Pete Hegseth varnarmálaráðherra sérstaklega nefndir til sögunnar.
„Þetta kvöld hefði litið allt öðruvísi út ef ekki hefði verið fyrir stríðið við Íran,“ sagði einn embættismaður og bætti við að hann teldi líklegt að Trump myndi láta Hegseth sæta ábyrgð.
Annar heimildarmaður gekk enn lengra og sagði að Trump ætti að gera róttækar breytingar á starfsliði sínu til að bjarga pólitískri arfleifð sinni.
Gagnrýnin beinist ekki síður að Susie Wiles, starfsmannastjóra forsetans, sem er sögð hafa fullvissað samstarfsmenn sína um að Repúblikanar myndu vinna kosningarnar.
Samkvæmt einum heimildarmanni voru starfsmenn Hvíta hússins enn á kjördag að ræða möguleikann á að flokkurinn myndi bæta við sig þingsætum í báðum deildum Bandaríkjaþings.
„Þau voru í algjörri sjálfsblekkingu. Þau voru í sjálfsblekkingu alveg fram á síðustu stundu,“ sagði heimildarmaðurinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗