Orri svalasti fyrirliði í Evrópu

Orri Steinn Óskarsson er fyrirliði Íslands.

Orri Steinn Óskarsson er fyrirliði Íslands. mbl.is/Ólafur Árdal

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hrósaði Orra Steini Óskarssyni landsliðsfyrirliða á blaðamannafundi í dag fyrir að hafa tekið frumkvæði þegar upp komu agabrot innan hópsins í síðasta landsliðsglugga.

Orri boðaði þá til leikmannafundar án aðkomu þjálfarateymisins þar sem rædd voru agabrot nokkurra leikmanna sem höfðu farið út á lífið í miðju landsliðsverkefni. Arnar sagði fyrirliðann hafa stigið vel upp þrátt fyrir ungan aldur.

Arnar var spurður hvort einhverjir leikmenn hefðu verið ósáttir við að þeir sem brutu af sér hefðu ekki verið nafngreindir. Hann sagðist ekki hafa orðið var við slíka óánægju og að hópurinn hefði tekið vel á málinu.

„Mér fannst fyrirliði okkar taka vel á þessu. Þetta er ungur fyrirliði en við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu. Það er ekki flóknara en það. Hann er 22 ára gamall og verður hér næstu 10, 15 árin,“ sagði Arnar.

Hann bætti við að eldri leikmenn hópsins hefðu einnig verið ánægðir með hvernig leikmenn, þjálfarinn og stjórnin tóku á málinu.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅