Er þetta næsti forseti Bandaríkjanna? – Líkt við Barack Obama

Kristinn H. Guðnason

Miðvikudaginn 4. nóvember 2026 17:30

Hinn 39 ára öldungarþingmaður frá Georgíu er efstur hjá veðbönkum að verða næsti forseti Bandaríkjanna. Mynd/Getty

Eftir stórsigur Demókrata í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nótt eru ýmsir farnir að máta sig við forsetastólinn eftir kosningarnar sem fara fram árið 2028. Ýmsir líta til öldungadeildarþingmannsins Jon Ossoff sem vann glæsilegan sigur í Georgíu fylki.

Blaðið The Independent greinir frá þessu.

Jon Ossoff, sem er nú 39 ára gamall, var naumlega kjörinn til öldungadeildarinnar árið 2020 með rúmlega 1,3 prósenta mun í aukakosningum gegn sitjandi þingmanni Repúblikana.

Í nótt varði hann hins vegar sæti sitt með miklum glæsibrag. Hlaut um 59 prósent atkvæða á móti 41 prósenti mótframbjóðanda síns. Var það einn af glæsilegustu sigrum Demókrata á mjög góðri kosninganótt flokksins þar sem hann náði völdum í báðum þingdeildum og vann mörg önnur embætti.

Ossoff, sem þykir einstaklega góður ræðumaður og hefur verið líkt við Barack Obama, hefur áður verið orðaður við framboð til forseta. Eftir kosningarnar í nótt hefur hann rokið upp hjá veðbönkum. Er metið að hann hafi 24 prósent líkur á því að verða næsti frambjóðandi Demókrataflokksins til forseta, en líkur hans voru metnar 11 prósent aðeins degi áður.

Líkurnar á að hann verði kjörinn forseti voru 10 prósent í gær en eru nú metnar 18 prósent samkvæmt veðbönkum. Er hann þar efstur á blaði. Á eftir Ossoff kemur þingkona Demókrata Alexandria Ocasio-Cortez með 14 prósent og J.D. Vance varaforseti með 13 prósent, sem er jafn framt efsti Repúblikaninn.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅