Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Stefán Jón og Andri Snær eru ekki sáttir

Sænsk loftslagsvábeiða, Johan Rockström, sótti nýlega landið heim og hélt hér fyrirlestur. Samkvæmt Svíanum er staðan nú sú að við stefnum lóðbeint til helvítis. Stefán Jón sótti þennan viðburð og var ekki kátur. „Ísland verður að taka sig verulega á“ var fyrirsögn viðtals við Stefán Jón í DV 30. okt. og hann notaði tækifærið til að hnykkja á nokkrum athugasemdum sem Aldin, samtök eldri borgara gegn loftslagsvá, hafa gert við nýtt frumvarp Jóhanns Páls til loftslagslaga. Þar kennir ýmissa grasa:

Grípa þurfi til aðgerða í landbúnaði, en stærsti hluti losunar þar er vegna sauðfjár- og nautgriparæktar. Meðal Íslendingur borðar 578 g af kjöti á viku og þarf að lækka það niður í 250 g, og það þarf að ráðast í stórtæka endurheimt votlendis með því að fylla upp í framræsluskurði. Eitthvað er minnst á þol vistkerfa og líffræðilega fjölbreytni og er þar væntanlega verið að vísa til gróðursetningar framandi, ágengra trjátegunda í íslenskar lyngbrekkur. Að auki þurfum við að hraða rafvæðingu samgangna, draga úr óþarfa akstri (rúnturinn verður aflagður), efla almenningssamgöngur, hjólreiðar og göngutúra. Enn fremur er lagt til að nýta tekjur af ETS-kerfinu til að flýta orkuskiptum og bæta orkunýtingu.

Þetta síðast talda rímar vel við grein Hallgríms hjá Carbon Iceand í Morgunblaðinu 26. okt. um að nýta þurfi ETS-fjármagnið m.a. til framleiðslu á rafeldsneyti fyrir skip, en fyrir þá sem ekki vita er rafeldsneyti m.a. metanól, vetni, ammoníak og metan.  Hef reyndar aldrei skilið þessa umræðu um grænt metanól og metan, því hvað myndast við bruna þessara efnasambanda? Jú, CO2. Látum það liggja á milli hluta, en til að framleiða rafeldsneyti og rafvæða samgöngur þarf gífurlega mikla raforku. Þurfum við þá ekki að virkja meira?

Viðskiptaráð telur svo vera og birtir 29. okt. skýrslu um fjölmarga, ónýtta virkjunarkosti og mynd af Íslandi alsettu misstórum og mislitum hringjum sem eiga að tákna hvað, hvar og hvernig er best að virkja, en fyrst þurfum við að sturta rammaáætlun niður í klósettið.

Andri Snær, sem er mikill áhugamaður um raforku og öflun hennar, verður alveg brjálaður og kallar Viðskiptaráð, eins og það leggur sig, apaheila í viðtali við DV 30. okt. Viðskiptaráði bregður í brún þegar hinn dagfarsprúði Andri byrstir sig, en ég get róað það með því að apar eru komnir lengra á þróunarbrautinni heldur en mannskepnan, því þeir geta klórað sér á milli herðablaðanna með lúkunum sem við getum ekki. Ég skil hins vegar áhyggjur Andra.  Það hefur ekkert upp á sig að virkja út og suður, ef ekki er hægt að flytja orkuna örugglega á milli staða. Og ég hef engan áhuga á vindorkugörðum í íslensku víðerni. Byrjum á að bæta dreifikerfið og sjáum svo til.

Þá blandar Aðalsteinn Júlíus sér í umræðurnar með grein í Vísi 31. okt.  Greinin er dálítið ruglingsleg og í byrjun áttar maður sig ekki á hvort hann hafi meiri áhyggjur af jarðarkaupum Jims Ratcliffe á Norðausturhorninu eða skattlagningu vegna yfirvofandi loftlagsvár, en í lokin kemst hann þó að niðurstöðu: „Íslendingar eiga ekki að þurfa að hafna alþjóðlegri ábyrgð til að verja hagsmuni sína. En þeir eiga heldur ekki að samþykkja sífellt þyngri skattbyrði án þess að krefjast skýrra raka, mælanlegs árangurs og sanngjarnrar skiptingar kostnaðarins. Loftslagsmál eiga að snúast um raunverulegan árangur, ekki skattheimtu sem markmið í sjálfu sér.“ Þar  sýnist mér Stefán Jón og Hallgrímur vera honum sammála.

En Aðalsteinn gerir ein mistök, hann bendir á að INEOS, fyrirtæki Ratcliffe, hafi losað 18x  meira af gróðurhúsalofttegundum en allt Ísland 2024 og fær fyrir vikið kaldar kveðjur frá Sveini Atla í Vísi 2. nóv. Sveinn virðist vera ákaflega önugur, ungur maður og verður voðalega pirraður ef einhver vogar sér að draga í efa skilaboð loftslagsvábeiðanna eða spyrji spurninga eins og t.d. af hverju við eigum að hjóla í vinnuna og leggja gasgrillinu á meðan menn eins og Ratcliffe drulla yfir okkur ár eftir ár? Í stað þess að gera lítið úr Aðalsteini í einhverjum langhundi hefði hann getað klappað honum á bakið og sagt: Þetta er alveg rétt hjá þér, Aðalsteinn. Stjórnvöld hafa enga áætlun um að nýta þessi gjöld og skatta til að aðhafast eitthvað í loftslagsmálum, kannski til að bæta vegina í Dölunum? Ertu búinn að gleyma stóra núllinu?

Ég get hins vegar glatt alla, sem hér hafa komið við sögu með því, að ráðherrar loftslags, orku og umhverfis sitja nú á fundi og ráða ráðum sínum, því hér stangast hvað á annars horn.

Bestu kveðjur úr óbærilegum léttleika tilverunnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅