Eitthvað mikið af ef mönnum líkar það ekki
Arnar Gunnlaugsson og Kristian Nökkvi Hlynsson fallast í faðma eftir leik Íslands og Frakklands í október á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Þetta er draumastaða íþróttamannsins,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, í samtali við mbl.is í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í dag.
Íslenska liðið mætir Búlgaríu í Sofiu þann 13. nóvember og loks Lúxemborg á Laugardalsvelli þann 16. nóvember en Arnar valdi 23 leikmenn fyrir komandi verkefni.
Ísland er með 8 stig í efsta sæti riðilsins, Eistland er með 6 stig, Búlgaría fjögur og Lúxemborg þrjú og Ísland getur því tryggt sér efsta sæti riðilsins og um leið sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar með hagstæðum úrslitum í komandi landsleikjaglugga.
Draumastaða íþróttamannsins
„Við erum komnir í þá stöðu að vera með örlögin í eigin höndum. Ef mönnum líkar það ekki, þá er eitthvað mikið að,“ sagði Arnar í samtali við mbl.is.
„Þú verður samt að loka þessu. Það erfiðasta hjá íþróttamanni er að komast yfir hjallann og ná í, ég kalla þetta smá titil. Þetta er kannski ekki heimsmeistaratitill, en þetta er titill þegar þú vinnur riðilinn þinn. Maður þekkir það frá tíma sínum í Víkingi að hafa bæði unnið og tapað úrslitaleikjum, þannig að þetta er erfið hindrun. Þú þarft að vera einbeittur og þú mátt ekki vera hræddur við að taka þetta skref.
Það er hluti af þroska liðsins að lenda í svona aðstæðum. Við féllum á prófinu á móti Úkraínu. Við fórum vel yfir það að við vorum einfaldlega ekki tilbúnir og gerðum mörg mistök í báðum leikjunum gegn þeim í undankeppni HM. Tilgangurinn með þessu brölti okkar í lífinu er að læra af mistökum, þannig að vonandi höfum við gert það og klárum þetta með sæmd,“ sagði Arnar í samtali við mbl.is.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗