Stökkir sælkerabitar með pistasíum og rósavatni

Rósavatnið og pistasíurnar gefa bitunum arabískan blæ, en hvort tveggja er gjarnan notað í sætmeti í arabískri matarhefð. Ljósmynd/Aðsend

Örþunnt fílódeig, mjúkar döðlur og grænar pistasíur fara hér saman í litla, gullna sælkerabita. Yfir þá er hellt volgri hunangsbráð með rósavatni og að lokum stráð söxuðum pistasíum og þurrkuðum rósablöðum. Útkoman er fallegur eftirréttur sem sómir sér ekki síður með góðum kaffibolla.

Rósavatnið og pistasíurnar gefa bitunum arabískan blæ, en hvort tveggja er gjarnan notað í sætmeti í arabískri matarhefð.

Uppskriftin er eftir Sigríði Björk Bragadóttur, Sirrý í Salt eldhúsi, matreiðslumann og fyrrverandi ritstjóra Gestgjafans. Hún sýnir hér hvernig nýta má afgang af fílódeigi í þessar stökku kræsingar. Ekki þarf að nota heil deigblöð ef afskurður er til, svo lengi sem bitarnir eru nógu stórir til að vefja utan um fyllinguna.

Matargerð þar sem forvitnin fær að ráða

Í Salt eldhúsi kemur fólk saman, lærir ný handtök og kynnist ólíkum matarhefðum undir leiðsögn matreiðslumanna og matgæðinga frá ýmsum löndum. Boðið er upp á bæði opin námskeið og einkanámskeið fyrir hópa.

Fjölbreytnin er mikil og á námskeiðaskránni má meðal annars finna franskan vetrarmat, spænska paellu og víetnamskan götumat. Á uppskriftabloggi Salt eldhúss er sömuleiðis miðlað hugmyndum fyrir heimiliseldhúsið og eru þessir fílódeigsbitar gott dæmi um hvernig nýta má einfalt hráefni á skemmtilegan hátt.

Fílódeigsrúllur með döðlum og pistasíum

Þessi réttur á eftir að koma skemmtilega á óvart.

Þessi réttur á eftir að koma skemmtilega á óvart. Ljósmynd/Aðsend

16 stykki

Fylling

  • 180 g ferskar döðlur
  • 150 g pistasíur, án skurnar
  • 2 msk. rósavatn

Utan um fyllinguna

  • 4 blöð af fílódeigi
  • 50 g smjör, brætt, eða meira eftir þörfum

Hunangsbráð

  • 3 msk. hunang
  • 1 msk. rósavatn

Til skrauts

  • Saxaðar pistasíur
  • Þurrkuð rósablöð ætluð til matargerðar

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200 °C og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
  2. Steinhreinsið döðlurnar og setjið í matvinnsluvél ásamt pistasíum og rósavatni. Vinnið saman þar til blandan er samfelld.
  3. Skerið hvert fílódeigsblað í fjóra jafnstóra hluta, alls 16 stykki. Hafið deigið sem bíður undir hreinu, örlítið röku viskastykki svo það þorni ekki á meðan unnið er.
  4. Penslið eitt deigstykki með bræddu smjöri. Setjið einn sextánda af fyllingunni við neðri brúnina og mótið í lítinn sívalning.
  5. Brjótið neðri brún deigsins yfir fyllinguna, brjótið hliðarnar inn og rúllið upp. Leggið á ofnplötuna með samskeytin niður. Endurtakið með afganginn af deiginu og fyllingunni.
  6. Penslið rúllurnar með bræddu smjöri. Bræðið meira smjör ef þess þarf.
  7. Bakið í um 10 mínútur eða þar til rúllurnar eru gullinbrúnar og stökkar.
  8. Hitið hunang og rósavatn saman í litlum potti og hellið yfir rúllurnar um leið og þær koma úr ofninum.
  9. Stráið söxuðum pistasíum og rósablöðum yfir og berið fram.

Bitarnir eru bestir nýbakaðir en einnig góðir daginn eftir. Þá má frysta en farið varlega með þá því stökkt deigið brotnar auðveldlega.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅