Segir tjónið „mikið meira en talið var í upphafi“

Hótelturninn við Skúlagötu gnæfir yfir nærliggjandi byggingar. Framkvæmdir við hann hafa nú verið stöðvaðar. mbl.is/Hákon Pálsson

Jón Árni Ágústsson, einn eigenda félaganna að baki Radisson Red-hótelturninum við Skúlagötu, segir tjónið á byggingunni virðast mun meira en upphaflega var talið. Hann segir að verið sé að rannsaka umfang tjónsins á vegum bankans en að niðurstaðan liggi ekki fyrir honum.

Spurður hvort eigendur hyggist leggja meira fé í verkefnið eða leita nýrra fjárfesta segist Jón ekki geta sagt til um það, enda sé enn óljóst hversu mikið tjónið er.

„Nú veit maður ekki hversu mikið tjónið er en það virðist vera mikið – og mikið meira en talið var í upphafi,“ segir Jón í samtali við mbl.is.

Jón segir að tjón hafi orðið á hluta byggingarinnar, en þar er meðal annars notast við forsmíðaðar herbergjaeiningar frá Póllandi. Að sögn Jóns var einingunum komið fyrir utan á steypt lyftu- og stigahús byggingarinnar fyrir um ári.

Óvíst er hvenær framkvæmdir við 17 hæða Radisson Red-hótelturninn geta hafist á ný en ljóst er að tjónið er meira en talið var í upphafi. mbl.is/Hákon Pálsson

Segir bankann hafa stöðvað fjármögnunina

Jón segir bankann hafa stöðvað frekari fjármögnun verkefnisins og að án fjármagns hafi ekki verið hægt að standa undir kostnaði við framkvæmdirnar.

„Þeir stoppuðu fjárveitingar inn í verkefnið,“ segir Jón.

Jón er skráður með 47% óbeinan eignarhlut í Landvík ehf., móðurfélagi S26 Hotel ehf., sem á hótelturninn. Hann kveðst þó ekki þekkja nákvæmlega stöðu verkefnisins og hefur ekki upplýsingar um hvernig staðið verður að frekari fjármögnun.

Framkvæmdir við 17 hæða hótelturninn voru stöðvaðar á mánudag og verktakar sendir heim. Óvíst er hvenær vinna við bygginguna getur hafist á ný.

Frá byggingarstaðnum í gærkvöldi. Engar framkvæmdir standa nú yfir.

Frá byggingarstaðnum í gærkvöldi. Engar framkvæmdir standa nú yfir. mbl.is/Eyþór

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅